Ægir - 01.11.1949, Side 26
268
Æ G I R
þeirra íþróttaþilfar. Á þvi er íbúð skip-
stjóranna, en yfir henni er stýrishúsið og
á þaki þess ýmiss lconar stjórntæki.
Á skipinu eru tveir skipstjórar, en ekki
er vitað, hvernig þeir skipta með sér
verkum. Annar þeirra er á ensku máli
kallaður „Captain", en hinn „Staff cap-
tain“. Einnig virðast vera tveir yfirstýri-
menn, er annar kallaður „Shief officer“,
en hinn „First officer“.
Lítillega A'ar drepið á það hér að fram-
an, hvernig farið var að því að setja „Lusi-
taniu“ á flot. Mun meiri undirbúningur var
þó um liönd hafður, þá er „Queen Mary“
var hleypt af stokkunum. Meðal annars var
gert um 5 metra langt líkan af skipinu.
Það varð að vera nákvæmlega eins að lög-
un að utan, og auk þess varð samanlagð-
ur þungi og dreyfing þungans í líkaninu að
vera í réttu hlutfalli við dreifingu þungans
í sjálfu skipinu, í því ástandi, sem það var
sett á flot. Að sjálfsögðu varð líka að gera
líkan af árfarveginum og fylla hann með
Jiæfilega miklu vatni. Einnig þurfti líkan-
ið að hemla i réttu hlutfalli við stærð þess
og þunga.
Rennibrautir (sleskjur) voru 10% fet á
breidd. Þess skal getið þeim til leiðbein-
ingar, sem fást við að setja skip á land eða
flot og nota til þess „sleskjur“ ábornar
með feiti, að núningsmótstaðan er minnst,
þegar þunginn á hvert ferfet er 2 smá-
Iestir, og gildir einu í því sambandi, hvort
skipið er 7 rúmlestir eða 70 þús. rúmlestir.
Á „Queen Elisabeth“ eru 26 stórir mótor-
björgunarbátur auk annarra fleytitækja.
Hver björgunarbátur tekur fleira fólk en
fyrsta farþegaskip félagsins „Britania“, er
smiðað var urn 1840, og hvern bát er hægt
að sjósetja á einni mínútu.
Þess er áður getið, að þjónustufólk er
mjög margt og störf þess margvísleg, en í
þeim hópi er þó hvorki fjósamaður né
mjaltakona eins og á „Britania“, enda voru
kýr hafðar þar um borð til þess að far-
þegarnir gætu fengið mjólk. — Borðsalur-
inn á I. farrými nær þvert yfir skipið og
þar geta borðað í senn 850 manns. Tvö
kvikmyndahús eru í skipinu, á I. farrými
fyrir 338 manns og á II. farrými fyrir 130
manns.
Hinn eiginlegi stjórnpallur er á næslu
liæð neðan við stýrishúsið, og nær hann
að heita má þvert yfir skipið (sjá mynd).
í þessum reisnum eru öll nýtízku tæki,
meðal annars 3 tegundir radartækja.
Komi upp eldur í skipinu, er strax hægt
að sjá hvar hann er, hefta útbreiðslu hans
og slökkva hann.
Svo var ráð fyrir gert, að „Queen Elisa-
beth“ yrði tilbúin að fara í fyrstu ferð sína
i aprílmánuði 1940. En vegna styrjaldar-
innar varð að grípa fyrr til skipsins en
ráð var fyrir gert og fór það sína „jóm-
frú“-ferð í febrúar 1940 og þá sem her-
flutningaskip. Til þess að villa um fyrir
þýzkum njósnurum, var ákveðið með
leynd, að skipið skyldi fara frá Clyde til
Southampton, en með enn meiri leynd var
skipstjóranum fyrirskipað að fara til New
York, þegar komið var út fyrir mynni
Clyde árinnar. Þýzkar flugvélar leituðu að