Ægir - 01.11.1949, Side 33
Æ G I R
275
Hið nýja flutningaskip S. I. S.
Síðast í nóvember kom til landsins nýtt
flutningaskip, sem er eign Sanibands ísl.
samvinnufélaga. Skip þetta heitir „Arnar-
fell“ og er smíðað í Sölveborgs Varvs- och
Rederi A/B, Sölvesborg í Svíþjóð.
„Arnarfell“ er 1381 rúml. brúttó, en
burðarmagn þess er 2300 smál. Lengd
þess er 88.8 m, breidd 12.34 m og full-
hlaðið ristir það 17 fet. — Aðalaflvélin er
1600 hestafla „Polar-dieseI“, en auk þess
eru tvær 135 ha. rafmagnsvélar svo og
Ijósavél. Fullfermt gengur skipið 12.5 míl-
ur, en í reynsluför fór það 14 sjómílur.
Vistarverur skipverja eru í senn þægi-
legar, rúmgóðar og snyrtilegar. — Fjórar
lestar eru í skipinu og eru þær allar með
millidekki. Innréttingu er svo hagað, að
hægt er að nota sjó fyrir seglfestu. Sér-
stakar dælur dæla sjónuni í þessi rúm,
sem annars eru veinjulegar lestir, en með
sérstökum útbúnaði. Með þessum hætti, er
hægt að spara þann kostnað, sem því
l'ylgir að skipa seglfestu á og úr skipi. —
Siglingatæki skipsins eru öll mjög vönduð.
í skipinu er „Gyro“-áttaviti og sjálfstýris-
útbúnaður í sambandi við hann, svo að skip-
ið getur stýrt sér sjálft, þegar í rúmsjó er
komið. „Autoalarm" er einnig í skipinu, en
það tæki gerir viðvart með klukknahring-
ingu víða um skipið, ef skip innan vissrar
vegalengdar sendir frá sér neyðarmerki.
,.Decca-“ og „Loran“ tæki verða einnig
innan skamms sett í „Arnarfell“. Dýplar-
mælir er af „Huges“-gerð. — Þetta nýja
skip virðist vera hið vandaðast að öllu
leyti og fyrirkomulag þess sem flutninga-
skip mjög hentugt. Skipstjóri á „Arnar-
felli“ er Sverrir Þór, 1. stýrimaður Guðni
Jónsson og Emil Pétursson 1. vélstjóri.
Skipið verður skráð á Húsavík, en þar
starfar sem kunnugt er elzta samvinnufé-
lag landsmanna.
Vélbáturinn „Smári" á Húsavík.
Haustið 1948 hafði Slcipasmíðastöð
Hafnarfjarðar starfað í þrjátíu ár. Júlíus
V. J. Nýborg skipasmíðameistari hefur
verið framkvæmdarstjóri hennar frá önd-
verðu og jafnframt haft umsjón með allri
smíði á stöðinni. — | þann mund, sem
skipasmíðastöðin átti 30 ára afmæli, var
þar í smíðum 65 rúmlesta bátur, og var
það 9. báturinn yfir 12 rúml., sem smíð-
aður hefur verið í stöðinni, en auk þess
hafa margir minni bátar verið smíðaðir
þar.
Nljóafirði og var byrjaður að bæta jörðina
á einn og annan hátt.
Hann var giftur Þórunni Einarsdóttur
á Hofi, og lifir hún mann sinn ásamt 2
börnum og fósturbörnum.
Árni Vilhjálmsson.