Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 11

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 11
Greenpeace hund- Nemendur Fiskvinnsluskólans: eltir blaðamann Ósmekkleg ummæli formanns skólanefndar Michael Klint er danskur blaðamaöur sem gerði sjón- varpsþátt um starfsemi Greenpeace, „Manninn í regnboganum". Þátturinn hefur þegar verið sýndur í sjónvarpi á Norðurlöndum. Klint segir að Greenpece hafi hundelt sig með mála- ferlum og hótað lögbanni á sýningu þáttarins og þannig komið í veg fyrir sýningu hans víðar. Greenpeace hafa ásakað Klint um að vera á mála hjá íslenskum fiskiðn- aði, vera hægri öfgamaður, vera á mála hjá þekktum öfgasinnum til hægri og Moon sértrúarsöfnuðinum. (Fiskeri Tidende sept. 1994.) „Við viljum mótmæla því sem fram kemur í ummælum Gunnars Rafns í Ægi og hvetjum hann til þess að kynna sér um hvað hann er að taia fyrst hann situr í skóla- nefndinni," sagöi Jón M. Arason formaður nemendafélags Fiskvinnsluskólans í sam- tali við Ægi. Hvatinn að mótmælum Jóns og félaga hans er grein í 7.-8. tbl. Ægis 1994 þar sem fjallað er menntunarmál fiskvinnslunnar í grein Þrastar Haraldssonar: Undarlega ófínt að stúdera þorsk. Þar segir Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður skólanefndar Fisk- vinnsluskólans, m.a. að stjórnendur og kennarar skólans hafi ekki haft burði til að takast á við nýja tíma, skólanefndir hafi verið daufar og skólinn hafi ekki notið trausts í greininni. Jón. M. Arason og félagar hans í Fiskvinnslukólanum eru síðasti árgangurinn, 16 talsins, sem þaðan útskrifast að sinni en þeir ljúka námi um jól eftir þriggja anna nám. „Það er margt sem má gagnrýna skólann fyrir en margt er mjög gott. Hingað koma góðir kennarar úr atvinnulífinu og skólinn er í góðum tengslum við það. Við nem- endur höfum unnið ýmis verkefni fyrir fyrirtæki í greininni. Okkur finnst vera á okkur troðið og það af þeim sem síst skyldi, bæði fiskiðnaðin- um sjálfum og aðstandendum skólans. Ummæli Gunnars vega ómaklega að skólan- um. Hann hefur setið í skólanefnd í 4 ár og veröur ekki séð að hann hafi gert neitt til þess að bæta ástandið. Svona ummæli koma sér illa fyrir okkur og Gunnar ætti að kynna sér betur ástandið áður en hann fer að gapa svona í fjölmiðlum." □ ÆGIR OKTÓBER 1994 1 1

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.