Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 33

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 33
upp á efra þilfar, hvalbak á tveimur hæðum á fremri hluta efra þilfars, og íbúðarhæð og brú aftantil á efra hvalbaksþil- fari (bátaþilfari). Rými undir neðra þilfari: Sex þverskipsþil (fimm vatnsþétt) skipta skipinu í eftirtalin rými, talið framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hágeyma fyrir brennsluolíu; tækjaklefa; lestarými, skipt í frystilest og mjöllest og mjölverksmiðju- rými aftantil, með hágeymum fyrir brennsluolíu fremst í síðum og hágeymum fyrir brennsluolíu og sjókjölfestu aft- antil í síðum, ásamt botngeymum fyrir brennsluolíu (fram- antil) og ferskvatn (aftantil); vélarúm með vélgæsluklefa fremst b.b.-megin og frystivélarými fremst s.b.-megin og botngeymum í síðum fyrir svartolíu o.fl.; og aftast skut- geyma fyrir brennsluolíu ásamt set- og daggeymum. Neðra þilfar: Fremst á neöra þilfari er stafnhylki fyrir sjó- kjölfestu, hágeymar fyrir brennsluolíu og keðjukassar ásamt tækjaklefa. Þar fyrir aftan er vinnsluþilfar með fiskmóttöku aftast. Aftan við fiskmóttöku er stýrisvélarrými. S.b.-megin við fiskmóttöku og stýrisvélarrými er vélarreisn, vinnslu- verkstæði og hjálparvélarými, en b.b.-megin vélarreisn og ketilrými ásamt verkstæði. Fremst s.b.-megin á vinnsluþil- fari er skrifstofa fyrir vinnslurými og b.b.-megin aftantil er stigahús sem tengir saman íbúðir á efra þilfari og vélarúm (vélgæsluklefa). Efra þilfar: Á efra þilfari eru þilfarshús meðfram báðum síðum, að mestu samfelld, og togþilfarið þar á milli með lokuðum gangi framantil (opinn að aftan). Fremst s.b.-meg- in er klefi fyrir rafbúnað vindna en þar fyrir aftan íbúðir, þá veiðarfærageymsla, klefi fyrir togvindumótor og aftast skor- steins- og stigahús. B.b.-megin eru íbúðir, þar fyrir aftan klefi fyrir togvindumótor og aftast skorsteinshús ásamt geymslurými. Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og greinist hún í sex bobbingarennur, sem liggja í gangi og fram aö stafni, þannig að unnt er að hafa þrjár vörpur und- irslegnar og tilbúnar til veiða. Aftantil í vörpurennu (fram- an við fiskilúgur) er vökvaknúið deilihlið til að aðskilja vörpur. Yfir afturbrún skutrennu eru vökvaknúnir toggálgar (ísgálgar), en yfir frambrún skutrennu er pokamastur, sem gengur niður í síðuhús beggja megin. Toggálgapallur er yfir skutrennu og tengist pokamastri. Blökk fyrir miðvír, fyrir tveggja vörpu togveiðar, er undir toggálgapalli fyrir miðju. Á toggálgapalli eru sæti fyrir varahlera. Neðra hvalbaksþilfar: Neðra hvaibaksþilfar (bakkaþilfar) er heilt frá stafni aftur undir miðju, en þar greinist það í tvennt og liggur meðfram báðum síðum aftur að pokamastri og tengist toggálgapalli. Á bakkaþilfari er lokuð yfirbygging frá stafni aftur undir skipsmiöju, en í henni eru íbúðir ásamt geymslu fremst. Aftast á framlengdu bakkaþil- fari eru vindustjórnklefi s.b.-megin og klefi fyrir C02- slökkvikerfi b.b.-megin, og eru klefar þessir sambyggöir pokamastri. Efra hvalbaksþilfar: Aftantil á efra hvalbaksþilfari (bátaþil- fari) er íbúðarhæð og yfir henni er brú skipsins. Á brúarþaki er ratsjár- og ljósamastur. Við óskuni Hröim hf og áhöfn til hamingju með nýsmíðina GUÐBJÖRG ÍS-46 og með kaupin á: POLY - ICE B OTNTROLLSHLERUM OG FLOTTROLLSHLERUM Við óskum útgerð og áhöfn alls hins besta og þökkumfyrir ánœgjuleg viðskipti og samfellda notkun á Poly - Ice toghlerum á „ Guðbjörgunum “ síðan 1979 - eða í 15 ár. BOTNTOGSHLERAR „FYRIR ALLAR BOTNTOGSVEIÐAR" J. HINRIKSSON H.F. SÚÐARVOGI 4 SÍMAR 814677 / 680775 104 REYKJAVÍK MYNDSENDIR 689007 „FRAMLEIÐENDUR TOGBÚNAÐAR í ÁRATUGI" ÆGIR OKTÓBER 1994 33

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.