Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 21

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 21
J. Rönning: Rafbúnaður er okkar mál „Þaí> er skýr stefna þessa fyrirtæk- is ab vera ekki ab vasast í mörgu. Viö höfum snúiö okkur aö einni sneiö af markaönum og hún er raf- búnaöur, heimilistæki og efni til raf- lagna," sagöi Kristinn Arnar Jóhann- esson markaösstjóri Johan Rönning hf. í samtali viö Ægi. Fyrirtækið Johan Rönning hf. var sett á laggirnar 1933 og heitir í höfuð- ið á Norðmanninum sem það gerði. Fyrstu árin fékkst fyrirtækiö við verk- takastarfsemi en frá 1961 hefur inn- flutningur og heildsala á rafmagnsvör- um og rafbúnaði veriö meginverksvið fyrirtækisins. Þaö er umboðsaðili fyrir marga heimsþekkta framleiðendur á sviði raf- búnaðar, t.d. ABB-samsteypuna, Elko, Hager, Thorn, Thorsmans, Wibe, Hitachi, Nokia og Fagor. Mikil samskipti við flotann „Við eigum mikil sam- skipti við fiskvinnsluna og flotann og komum að mörg- um þáttum. Það eru einkum sérhæfðar rafvörur og raf- mótorar sem við seljum út- gerðinni. Um borð í einu skipi geta verið nokkur hundruö rafmótorar sem knýja færibönd, spil, dælur o.fl. Með stiglausum hraða- stillum er hraða vinnslunnar stjórnað. Auk þess má nefna rafstrengi, rafmagnstöflur, mótorræsibúnað, rofabúnað í töflur og hraðastýringar af mörgu tagi. Allur rafbúnaður sem seldur er um borð í skipin er háður samþykki Skipa- eftirlits ríkisins sem styðst við staðla Lloyds eða Norsk Veritas." Rafmótorarnir koma einkum frá ABB sem er stærsta samsteypa á sínu sviði í heiminum. Hjá ABB eru 213 þúsund manns á launaskrá og velta samsteypunnar er 30 billjónir dollara árlega enda teygir hún arma sína um víða veröld. Sænska móðurfyrirtækið ASEA er nógu stórt til þess að litið er á Svíþjóð sem heimaland þessa stóra fjölþjóðafyrirtækis. ABB rekur sérstaka rannsóknadeild í Vesterás og veitir rúmum 2 billjónum dollara til rann- sókna á ýmsum sviðum áriega. Miklar framfarir í stýribúnaði „í rauninni hafa rafmótorar sem slíkir lítiö breyst í 50-60 ár. En það hafa orðið mikiar framfarir á ýmsum stýribúnaöi og nú er framleiðsla mót- ora miklu staðlaðri en var. Evrópubandalagið er aö koma á nýjum stöðlum fyrir rafmótora sem allir framleiðendur verða að laga sig að, svo nú erum við að sjá ýmsar breytingar." Kristinn Arnar Jóhannesson markaðsstjóri Johan Rönning hf. Hjá Johan Rönning vinna 23 starfs- menn. Að sögn Kristins eru ekki sér- stakir tæknimenn sem sinna flota og fiskvinnslu. „Við kynningu á okkar vörum vilj- um við reyna að höfða beint til þeirra sem nota vörur okkar dags daglega. Þetta á sérstaklega við um sjávarútveg- inn." Kristinn benti á þá alvarlegu þróun að síðan skipasmíðar lögðust að mestu af hér á landi sé sala til nýsmíða nær alveg úr sögunni. Flest viðskipti við flotann snúist um endurnýjun. í kjöl- farið hafi oröið nokkur samdráttur á þessu sviði og fátt við því að gera ann- að en að vona að úr rætist fyrir íslensk- um skipasmíðaiðnaði. „Við seljum fleira en rafmótora í skipin. Við erum með sérhæfðan ljósa- búnað fyrir skip. Þetta eru bæði kastar- ar utan á skipin, ijós í lestar og lesljós í kojurnar. Við seljum rafmagnshitablásara og ofna í vistarverur og stakkageymslur sem hafa verið mjög vinsælir. Á þess- um markaði höfum við veriö mjög leiðandi." Stöðvar eld og reyk Johan Rönning býður nú nýjungar á sviði sem tengist raflögnum en það eru brunaþéttingar fyrir raflagnir frá sænska fyrirtækinu FireSeal en það fyr- irtæki hefur um áratuga skeið stundað framleiðslu og rannsóknir á bruna- þéttibúnaði. Nauðsyn þess að hefta út- breiðslu elds er öllum ljós og hvergi er það meira áríðandi en um borð í skipum sem brýnt er að sé skipt upp í nokkur þétt eldhólf. Mikil- vægt er að veggir sem eiga að vera brunaþéttir séu ekki með götum á þar sem eldur og gasefni eiga greiða leið um. Þetta á til dæmis við um rafleiðslur, skolprör, loft- ræstistokka og fleira. Bruna- þéttiefnin eru til í margvís- legum útfærslum. „Við teljum að á þessu sviði hafi mörgu verið ábótavant," segir Kristinn. „í stórum dráttum má segja að búnaður sé eink- um sérstök rör eða hólkar sem raflagn- ir og annað getur legið um gegnum veggi. Við ákveðið hitastig þenst efnið innan í hólkunum út og myndar al- gjörlega þétta og trausta vörn fyrir eldi, gasi, reyk eða vatni. Vörnin þenst svo margfalt út að rör eða hólkur sem er sex sentimetrar í þvermál lokast al- veg." □ ÆGIR OKTÓBER 1994 21

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.