Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 25

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 25
Danir borða meiri fisk en áður Þó Danir hafi aukiö fiskneyslu sína um 2,5 kíló á mann á síðustu 10 árum hrekkur þaö skammt miðað viö þau 93 kjötkíló sem hver Dani hesthúsar árlega. Á hverju ári borðar hver Dani 20 kíló af fiskafurðum, þar af 6,5 kíló af ferskum fiski. Þetta þykir ekki ýkja mikið saman- borið við t.d. Norðmenn en hver þeirra borðar að meðaltali 40 kíló af fiski og sjáv- arafurðum. Þrátt fyrir þennan mikla mun segir formaður félags fisksala í Danmörku að fiskætur sæki stöðugt í sig veðrið og þeim fjölgi hægt en örugglega. (Fiskerí Tidende sept. 1994.) Fiskmarkaður á Neskaupstað Fiskmarkaður hefur verið opnaður á Neskaupstað. Hann er tengdur Fiskmarkaði Hornafjarðar og er boöið upp gegnum fjar- skiptanet. Með þessu eru útibú frá mark- aðnum á Hornafirði orðin tvö, en hitt er á Fáskrúðsfirði. (Austurland sept. 1994.) Danskir fiskmjöls- framleiðendur ánægðir Fimm fiskimjölsverksmiðjur á vestur- strönd Danmerkur hafa skýrt frá því að árið 1994 stefni í að verða mjög gott. Allar verksmiðjurnar hafa tekið á móti mun meira hráefni samanborið við síðasta ár og má þakka það góðri bríslingsveiði. Þó árið virðist ætla að verða gott mun það samt ekki veröa eins gott og metárið 1992. Verð á framleiðslunni er ekki sérlega hagstætt, ab hluta vegna bágrar stöðu doll- ars, en góð sojabaunauppskera í Bandaríkj- unum hefur einnig áhrif svo og mikið framboð á lýsi frá Suður-Ameríku. (Fiskerí Tidende sept. 1994.) Gamalt og nýtt? „Gamalt skip er skip sem ekki er nýtt. Nýtt skip er skip sem hafin er smíði á eftir gildistöku þessara reglna." (Reglugerð nr. 189. 21. mars 1994 um björgunar og öryggisbúnað íslenskra skipa. 1. grein. Gildissvið og skilgreiningar.) Hver hlustar? Danskir sjómenn hafa lýst áhyggjum sínum vegna þess hve auðvelt er að hlera farsíma, en þeir verða stöðugt vinsælli fjarskiptatæki um borð í skipum. Með „skannerum" er hægt að staðsetja skip sem notar farsíma og hlusta á símtöl. Danska sjómenn grunar að veiðieftirlitið notið slíkan tækjabúnað til þess að fylgjast með ferðum þeirra. (Fiskeri Tidende sept. 1994.) Sókn í Suður-Ameríku Danska útflutningsrábib hyggur á mikla sókn á mörkuðum í Perú og Chile þar sem markaðir eru í miklum vexti. Sérstakt átak verður gert á þessu sviði í tengslum við sjávarútvegssýninguna Expo-Pesca í Santiago 30. nóvember til 3. desember nk. Danir taka þátt í sýningunni sem þeir telja afar mikilvæga en verða viku áður með sérstaka kynningu á afurðum sínum í Lima í Perú. (Fiskeri Tidende sept. 1994.) 1L IIII f*l»IP RAFMÓTORAR SEM SNÚASTOG SNÚAST Mótorar fyrir allar þarfir, 0,18 - 900 kW. Nýr Evrópustaöall M2BA. HRADA • STYRINGAR FYRIR D/ELUR, FÆRIBÖND 0.FL. TT Veldu ABB SAMI-GS hraöastýring fyrir mótorstæröir 0,37 - 315 kW. • JOHAN RÖNNING HF SUNDABORG 15 104 REYKJAVÍK SÍMI: 91-684000 FAX: 91-688221 ÞIÓNUSTA í 60 ÁR ÆGIR OKTÓBER 1994 25

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.