Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 28

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 28
vinna aftur á móti hlýir hafstraumar stöbugt gegn kælingunni og því helst sjávarhitinn þar yfir frost- marki allan veturinn. Af framansögðu má sjá að umskipti sumars og vet- urs geta tekið mjög skamman tíma þarna norðurfrá. Vetur skellur á meb tilheyrandi loft- og sjávarkulda fljótlega með fyrstu djúpu haustlægöun- um, sem ósjaldan fara að sýna sig þegar líða tekur á september (nokkuð breyti- legt frá einu ári til annars). Skipum stöddum í kalda sjónum norðan strauma- skilanna í Barentshafi er mikil hætta búin vegna mögulegrar isingar. Stjórn- andi skips, sem statt er langt inni á þessu haf- svæði, tekur mikla áhættu með veru sinni þar síðla haustsins og yfir vetrar- mánuðina. Geta skipin hæglega fengið á sig ísingu í abeins 6-7 vindstigum svo ekki sé nú talað um al- vöru brælu í 9-10 vind- stigum. Útgerðarmenn bera mikla ábyrgð Öll skynsemi hnígur í þá átt að íslensk fiskiskip haldi sig af öryggisástæö- um fjarri Smugunni frá miðjum október að telja og fram á vor þegar los fer að komast á hafísinn, sennilega í maíbyrjun. Ábyrgð útgerðarmanna, sem halda ætla skipum sínum að veiðum á fjar- lægum miðum sem þess- um, er mikil. Vonandi sjá menn ab sér í tíma, ábur en óhöpp verba á þessum fjarlægu og varasömu fiskimiðum. □ Samantekt þessi er að miklu leyti unnin upp úr norskri skýrslu og upp- lýsingar sem myndirnar eru byggðar á eru þaðan fengnar. Environmental condi- tions on the Norwegian continental shelf Barents Sea. SINTEF report, 1989, Trondheim. HUGSUM ISLENSKT! LÍNU 70, 80 og 100 lítra línubalar nneð traustum handföngum UÐ f\fíSTI Fjórar gerðir af endurvinnanlegum og burðarmíklum vörubrettum. ISTIS0 9001/EN 29001 VOTTUN Hr - VOTTAÐ GAOA>iWI SijjuiQarpiliJit nv, ÞAR SEM GÆÐIN GANGA FYRIR Sefgörðum 3,170, Seltjarnarnesi. Sími 91 -612211. Fax 91 -614185 Netaveiðar Innan Evrópusam- bandsins vex þeim öfl- um fiskur um hrygg sem vilja banna allar netaveiðar. Ástæður andúðar á netum eru einkum tvær. Önnur er að smáhvalir og ýmis sjávardýr drepast í þeim og hin er svoköll- uð drauganet sem talin eru valda miklum skaða í lífríkinu. Þeir sem stunda netaveiðar í Norðursjó hafa mót- mælt þessum áformum harðlega. (Fiskeri Tid. sept. 1994) Vaxa hraðar með tónlist Franskur líffræðingur og tónskáld hefur sótt um einkaleyfi á tónlist sem hann fullyrðir ab auki vöxt hjá plöntum. Tónlistin er sett saman úr tónum sem líkja eftir hljóðum sem amínó- sýrur gefa frá sér þegar þær mynda prótein. Sveiflutíbni tébrar tónlistar hvetur því plöntur sem „heyra" tónlistina til aukins vaxt- ar. Franski líffræðingurinn kveðst hafa aukið vaxtarhraða tómata um helming og stöðvað sýkingu í plöntum meb því að spila réttu tón- listina. Hann segir að gallinn sé sá ab tónlistin virki á abrar lífverur sem innihalda sömu amínósýr- ur. Þannig hafi lag sitt „Cytochrome C" valdiö öndunarerfibleikum hjá mönnum þar sem ákveðið prótein finnist bæbi í öndunarfærum manna og í plöntum. [Fiskaren sept. 1994) Ólöglegt hvalkjöt í Japan Bandarískir vísindamenn tóku 14 sýni af hvalkjöti á almennum markaði í Jap- an og rannsökubu erfbafræbilegan upp- runa þess. Helmingur sýnanna reyndist vera af hvölum sem bannað er að veiða. Eitt sýni var af hrefnukjöti úr Norður- Atlantshafi. Norðmenn hafa veitt hrefnu í tvö ár en útflutningur er bannaður. Fjögur sýni voru af langreyði en þá teg- und hefur ekki mátt veiða í Norður- Atlantshafi frá 1989 og í öðrum höfum hefur veiði legið nibri frá 1986. Eitt sýni virtist vera úr hnúfubak úr norbanverðu Kyrrahafi en veiðar á honum hafa verib bannabar frá 1966. Þab virðist því vera pottur brotinn víða í heiminum þegar hvalveiðibann er annars vegar. (Fiskaren sept. 1994.) 28 ÆGIR OKTÓBER 1994

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.