Hlín - 01.01.1923, Blaðsíða 44
42
Hlin
prjónaflíkur. — Jeg hefi prjónað úr lopa: Heilsokka, neð-
an á sokka, húfur, trefla og utanyfirpeysur á börn, 7 og
8 ára gömul. — Er því í fáum orðum reynsla mín sú,
að flíkur þessar sjeu ekki lakari að haldgæðum, skjóli og
áferð, en þótt þær væru úr bandi af samskonar ull. Og
í húfur tek eg lopann fram yfir band, því þær eru mikið
Ijettari, liprari og áferðarfallegri en úr bandi. Jeg hefi selt
eina húfu þannig gerða, og hjeldu þeir sem sáu hana,
að hún væri útlend. — En þess ber að gæta, að þyki
manni lopinn of smár einfaldur, er oft getur verið, eftir
því í hvað hann er ætlaður, og hvað hann er fínn í eðli
sínu, þá má prjóna hann tvöfaldan, eða úr tveimur plöt-
um saman. — Fljótlegra er að fitja upp á bandi, þegar
prjóna á lopa.
Mjer þætti gaman, ef fleiri vildu reyna þennan lopa-
prjónaskap, og birta siðan reynslu sína í Hlín, ef hún
þætti nokkru máli skifta.
Elin Kr. Guðmundsdóttir.
Sneis, Laxárdal, Húnavatnssýslu.
Peysufatasjölin.
Spyrji maður unglingsstúlku, hvernig á því standi, að
hún taki ekki upp peysufötin, er viðkvæðið oft, að þau
sjeu svo dýr, hún sjái sjer það ekki fært. Þetta er að
nokkru leyti satt, og hafa sjölin einkurn átt þátt í að
hleypa búningnum fram, þareð þau hafa kostað þetta
frá 75 og upp í 325 krónur.
. Nú langar mig til að sýna fram á, að hægt er að fá