Morgunn - 01.06.1958, Blaðsíða 7
Th. Kierkegaard,
prestur í Kaupmannahöfn:
Verður framhaldslíf
sálarinnar sannað?
★
Það er ánægjulegt að í þrem elztu guðspjöllunum eigum
við röð af Jesú-orðum, sem einhverjir lærisveinanna hafa
fært í letur skömmu eftir að Jesús talaði þau, og voru síð-
an tekin upp í elztu guðspjöllin. Þessi sögulegu Jesú-orð
í guðspjöllum Matteusar, Markúsar og Lúkasar flytja oss
því hreina kenningu Jesú sjálfs.
Hvað kennir Jesús mn lífið eftir
dauðann?
Greinilegast fáum við að vita það af frásögn Lúkasar-
guðspjalls (16,19-31) af ríka manninum og Lazarusi. Við
hljótum óðara að taka eftir því, að þessi saga er ekki sögð
sem líking, heldur heinlínis sem frásögn af atburði, og að
báðir, hinn ríki og fátæki beiningamaðurinn, lifa áfram
eftir dauðann algerlega meðvitandi andlegu lífi. Ríki mað-
urinn man eftir bræðrum sínum, sem enn eru á jörðunni,
og hann vill feginn aðvara þá. Hann þekkir aftur bein-
ingamanninn Lazarus, og hann fær leiðsögn Abrahams
ættföður síns. Hann kvelst eins og ofdrykkjumaðurinn og
nautnaseggurinn hlýtur að kveljast, þegar hann er svipt-
ur möguleikanum til þess að svala girndum sínum. En
raunverulega vondur maður er hann ekki, því að hann
langar til að hjálpa bræðrum sínum. En hann hefir lifað
hégómlegu yfirborðslífi, hefir allur verið á valdi þess að
1