Morgunn - 01.06.1958, Blaðsíða 35
MORGUNN 29
Því sama æðsta markmiði sem allir sannir dulhyggjumenn
aldanna.
Og enn meira hefir komið í ljós. Söguleg rannsókn hefir
leitt í Ijós fjölmargar hliðstæður í kristinni trú og öðrum
trúarbrögðum. Engin trúarhugmynd, engin trúfræðikenn-
ing, engin siðakrafa, ekkert kirkjuform né form trúrækni
og tilbeiðslu er til í kristnum dómi, svo að ekki megi finna
margar hliðstæður þess í ekki-kristnum trúarbrögðum. 1
trúarbrögðunum, sem komu fram fyrir Krists burð, er að
finna sjálfar uppsprettur margra kristinna trúarhug-
mynda, kenninga og stofnana. Hin elzta kristni stóð í nán-
um tengslum við hið gríska, helleníska umhverfi sitt.
Þessi þýðingarmiklu atriði hafa opinberað mönnum þá
mnri einingu allra trúarbragða, sem nútíma fræðimenn á
þessu sviði, eins og þeir Van der Leeuw, Bleeker og Joa-
chim Wach hafa fært sönnur á. Einn þráður liggur í gegn
um öll trúarbrögð, hin æðri og hin lægri. En í þessari alls-
hcrjar einingu trúarbragðanna er þó greinilegust eining
mna æðri trúarbragða. Sjö einkenni eru í meira eða
mmna mæli sameiginleg taoisma Kínverja og konfúsían-
lSrna> hindúisma Indverja, húddhadómi, masdaismanum
Persneska, gyðingdómi og kristindómi. Þau eru þessi:
!) trú á raunveruleik hins yfirjarðneska, heilaga, guð-
le&a heims, að baki og ofar jarðneskum skynheimi.
) trú á ívist þessa yfirjarðneska veruleika í hjarta
mannsins.
3) trú á þennan veruleika sem æðsta sannleik, réttlæti,
^aerleika og fegurð, í stuttu máli sagt, trú á þennan
"veruleika sem hið æðsta góða: summum bonum.
4) trú á að guðlegur kærleikur og miskunn opinberist
í manninum.
5) að vegurinn til hins æðsta veruleika sé vegur fórn-
ar, bænar og íhugunar.
6) trú á að kærleikur til Guðs og kærleikur til náung-
ans sé af einni rót. öll hin æðri trúarbrögð krefjast