Morgunn - 01.06.1958, Blaðsíða 76
70
MORGUNN
trúar og kennisetninga, kann að vera fleira en menn hafa
fram að þessu komið auga á, sem trúverðugt er og mun
reynast. Því að bæði í guðspjöllunum og Postulasögunni
er frá mörgum atburðum sagt, sem rannsóknamaðurinn
finnur í fullri samhljóðan við þær niðurstöður, sem hann
dregur af athugunum sínum á sálrænum fyrirbærum í
dag.
Eitt dæmi af mörgum, sem vert er að nema staðar við,
er frásagan af því, sem sagt er að gerzt hafi á hvítasunnu-
deginum, eins og 2. kap. Postulasögunnar segir frá þeim
atburðum. Eldtungurnar eru algengt fyrirbæri á sálræn-
um samkomum. Mörgum sinnum hefi ég séð eldtungur á
tilraunafundunum með miðlinum Ada, sem nákvæmlega
svara til lýsinganna í Postulasögunni. í myrkvuðu til-
raunaherbergi voru þessar eldtungur svo sterkar, að þær
lýstu upp hluti, sem í kring um þær voru í herberginu.
Ég fékk ekki séð, að þessi ljósafyrirbrigði hefðu nokkurn
tilgang. í frásögunni af hvítasunnufyrirbrigðunum er tal-
að um að „gnýr hafi orðið af himni, eins og aðdynjanda
sterkviðris“. Hér kunna að vera notuð of sterk orð, en
þetta fyrirbæri þekkist vel enn í dag. Þeir, sem sátu fund-
ina hjá Ödu, fundu þrásinnis sterkan, kaldan vind fara í
gegn um herbergið, þótt dyrum og gluggum væri læst. Vér
gátum ekki heldur séð, að þessi fyrirbrigði hefðu nokkurn
tilgang. Samt er ég sannfærður um, að þessar sterku hita-
breytingar í tilraunaherberginu hefði verið auðvelt að
mæla, ef við hefðum gætt þess, að hafa tæki til þess.
Talað tungum
Sjálfur hef ég aldrei orðið vottur þess, að talað hafi
verið tungum, líkt og Postulasagan segir frá. En í bók-
menntum sálarrannsóknanna eru mörg dæmi tungutals-
ins. Hér eru tvö dæmi þess:
Professor Neville Whymant, sérfræðingur í ensku og
austurlandamálum við háskólann í Oxford, skrifaði bók,