Morgunn - 01.06.1958, Blaðsíða 50
44 MORGUNN
Franz erkihertogi. Sarajevo 28. júní 1914, klukkan hálf
fjögur að morgni“.
1 morgunskímunni ritaði Lanyi biskup, óðara og hann
vaknaði, draum sinn á blað. Rithöndin á blaðinu var ótrú-
lega lík rithendi Franz erkihertoga sjálfs.
J. A. þýddi úr Okkultische Erlebnisse Be-
riihmter Frauen und Mánner, Wien, 1950.
★
EFNIÐ 0 G ANDINN
heitir bók eftir varaforseta S.R.F.Í., síra Svein Víking biskupsrit-
ara, sem kom út á liðnum vetri og fékk að verðugu ágætar viðtökur.
í ljósu máli gerir höf. grein sína fyrir ýmsum höfuðviðfangsefnum
hugsandi manna, til trúar og siðgæðis, Guðs og manna, lífs og dauða.
Hér heldur maður á penna, sem lesendum er gagnlegt að fylgja, og
hann leiðir þá inn í merkilegan heim, viturlega og varlega, en er
þægilega laus við að troða upp á lesendurna skoðunum sínum. En
sannfæring hans dylst þó ekki.
Bókin er skrifuð af vitrum manni, sem stendur ábyrgur gagn-
vart alvöru tímanna, er sannfærður spíritisti, en sannfærður fyrst
og fremst um það, að á vegum Krists sé það lífsviðhorf að finna,
sem bjargað getur mannkyninu.
Það er ánægjulegt að mæla með þessari merku bók.
Jón Auðuns.