Morgunn - 01.06.1958, Side 62
Miðill eða morðingi?
★
Höfundur greinarinnar er prófessor Thorstein Wereide,
við háskólann í Ósló. Hann er formaður norska sálar-
rannsóknafélagsins, og hefur lagt mikla stund á sálar-
rannsóknir. Hann hefur skrifað bækur um þau efni, m. a.
eina, sem getið var um 1 MORGNI fyrir nokkurum árum.
1 október 1934 var kona nokkur í Ösló, frú Ingeborg
Koeber, dregin fyrir rétt, sökuð um morð. Hún var ákærð
fyrir að hafa drekkt föður sínum 8. ágúst sama ár, þegar
hann var á sundi við Hankö, fyrir sunnan Ósló.
Ég þekkti frú Koeber. Ég hafði kynnzt henni sem miðli,
vegna áhuga míns á sálarrannsóknum. Hún var ein fjög-
urra barna Dahls dómara, sem naut mikillar virðingar í
sinni stétt og bjó í Frederiksstad, nálægt Ósló. Það fór að
bera á miðilshæfileikum Ingeborgar stuttu eftir dauða
bróður hennar, Ludvigs, árið 1919.
Til allrar óhamingju voru það einmitt miðilshæfileikar
frú Koeber, sem óbeinlínis orsökuðu morðákæruna á hend-
ur henni. En beinlínis var morðákæran komin frá þeim,
sem harðneituðu að trúa á það, að dularfull fyrirbrigði
gætu gerzt, því að nokkrum mánuðum fyrir dauða föður
síns hafði hún séð hann fyrir, eins og hann gerðist, og
hafði oftar en einu sinni tilkynnt það í miðilsástandi, án
þess að hafa minnstu hugmynd um það sjálf, hvað hún
var að segja.
Sagan byrjar árið 1919, eftir dauða Ludvigs bróður
hennar. Það var þá sem Dahl-fjölskyldan uppgötvaði, að
Ingeborg virtist, ýmist í svefni eða dáleiðsluástandi, geta
komizt í samband við bróður sinn. Fjölskyldan fór að hafa
miðiisfundi. Þeir voru lausir við allan hátíðleik og fóru