Organistablaðið - 01.07.1975, Síða 4
LÁRUS JÓNSSON
organleikari
F. 25. mars 1896
D. 15. apríl 1975
Lárus var fæddur að Giljum
í Mýrdal og ólst 'þar upp. —•
Snemma !bar á bæfileikum og
hneigð hans til tónlistar. Fyrstu
tilsögn í harmoníumleik fékk
bann hjá Lofti Jónssyni bónda á
Höfðabrekku, en síðar, 1912,
nam liann veturlangt hjá Brynj-
ólfi Þorlákssyni dómkirkjuorgan-
leikara í Reykjavík og aftur
veturlangt, 1919—1920, hjá
■Kjartani Jóhannessyni, sem þá var fríkirkjuorganleikari í Reykjavík.
Lárus var organleikari við Skeiðflatarkirkju í Mýrdal á árunum
1912—1924, en fluttist til Hafnarfjarðar árið 1928 og gerðist söng-
kennari við Flensborgarskóla og gengdi því -starfi til ársins 1943.
Organleikari var liann við fríkirkjuna i Hafnarfirði 1928—1932,
Bessastaðakirkju 1932—1938 og aftur 1948—1949 og loks Kálfa-
tjarnarkirkju 1945—1953. — Söngkennari var hann við barnaskól-
ann á Bjarnaslöðum á Álftanesi 1932—1938 og við barnaskólann
á Vatnsleysuströnd 1946—1947. — Söngstjóri karlakórsins „1. maí“
í Hafnarfirði var hann 1930—1931. — Auk þessa kenndi hann har-
móníumleik um fjölda ára, en eíðustu árin var hann starfsmaður
við Rafveitu Hafnarfjarðar.
Lárus var tvígiftur. Fvrri kona hans var Jónína Guðrún Lárus-
dóttir frá Árdal i Borgarfirði, sem hann kvæntist 1930. Hún lést
langt um aldur fram árið 1938. Síðari kona hans er Karólína
Kristín Bjömsdóttir frá Vestmannaeyjum. Böm þeirra urðu 4, 3
dætur, sem hafa stofnað heimi'li og sonur, sem býr enn hjá móður
sinni.
Lárus varð snemma félagi í FÍO og sótti oft fundi, áður fyrr.
Hann var mikið ljúfinenni og glaðsinna. Hann hljóp oft í skarðið
4 ORGANISTABI.AÐIÐ