Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 8. J A N Ú A R 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 13. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is ÁN ALLRA AUKEFNA FÆUBÓTAREFNI ÍSLENSKTPRÓTEIN Ætlað þeim sem vilja skipta út narti fyrir heilsusamlegan próteindrykk. «LEIKLIST VEL HEPPNAÐ LEIKHÚSVERK «TÓNLEIKAR Framvarðarsveit íslenska poppsins 6 HLÝTT hefur verið á Akureyri síðustu daga og snjó tekið upp, en í ruðn- ingum sem verða til þegar bæjarstarfsmenn hreinsa götur felast ýmsir möguleikar fyrir hugmyndaríkt ungviðið. Í myndarlegum hól við Borgar- hlíð hefur hópur unnið sleitulítið undanfarna daga við gangagerð, meðal annarra þau Birkir Andri, Arnar Logi, Orri, Almar Þór og Sandra Sól. UNG Í GANGAGERÐ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „UMRÆÐA um sjávarútveginn núna er sérstök,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegs- manna. Hann segir spjót standa á útgerðarmönnum þessa dagana og stjórnvöld fari fram með óvægnum hætti. Nefnir hann þar fyrningar- leiðina, en áformað er að taka 5% aflaheimilda af handhöfum þeirra á hverju ári og bjóða svo upp. Þær fyr- irætlanir koma að óbreyttu til fram- kvæmda í haust. Starfandi er nefnd sem vinnur að endurskoðun laga um stjórn fisk- veiða. Frá því í nóvember sl. hafa fulltrúar LÍÚ hins vegar haldið sig utan starfs nefndarinnar, það er eft- ir að sjávarútvegsráðherra gerði uppskátt með að hefja skyldi fyrn- ingu aflaheimilda í skötusel. „Með því voru forsendur okkar um þátt- töku í starfi nefndarinnar brostnar,“ segir Friðrik og bætir við að út- reikningar sýni að fyrning aflaheim- ilda, þó að á löngum tíma verði, stefni sjávarútvegsfyrirtækjum í þrot. Þá standist fyrning aflaheim- ilda hvorki atvinnu- né eignar- réttarákvæði stjórnarskrár að mati lögmanna sem kannað hafa málið fyrir LÍÚ. „Útgerðarmenn hafa skyldur gagnvart starfsfólki, við- skiptavinum, lánardrottnum og fleir- um. Eðlilega velta menn því fyrir sér að stefna flotanum í land,“ segir Friðrik. Strandveiðar eru óhagkvæmar Fyrir helgi kynnti sjávarútvegs- ráðherra skýrslu um strandveiðar sl. sumar og niðurstaðan þar, er að vel hafi tekist til. Friðrik er því ósam- mála og bendir á að aðeins 56% fisk- kaupenda hafi talið gæði strand- veiðifisks standast samanburð við annan afla. Veiðarnar séu lýsandi fyrir óhagkvæmni sóknarkerfa þar sem keppst sé við á allt of mörgum bátum í skamman tíma. Sjávarútvegsmálin eru víða til um- fjöllunar. Í pistli á vefsíðu Snæfells- bæjar segir Kristinn Jónasson bæj- arstjóri hættumerki á lofti. Óvissa sem ríkisstjórnin hafi sett á sjávar- útveg sé óþolandi. „Þegar vel gengur hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum þá gengur betur hjá okkur hinum.“ Forsendur brostnar og fyrning óvægin  LÍÚ ósátt við stjórnvöld  Fyrirtækj- um stefnt í þrot  Strandveiðar ekki góðar Í HNOTSKURN » LÍÚ til hlés í endurskoð-unarnefnd og mótmælir fyrningu skötuselskvóta. » Útgerðarmenn hafaskyldur og eðlilegt er að velta fyrir sér að stefna í land.  HNÚFUBAKUR sem hélt sig út af Ölfusárósum lagði í haf fyrir helgina og var í gærdag staddur 860 km suður í Atlantshafi, djúpt vestur af Írlandi. Þetta sýna gögn frá gervihnatta- sendi. „Hval- urinn syndir ákveðið, fer rúmlega 100 sjómílur á sól- arhring,“ segir Gísli Víkings- son, sérfræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun. Vísindamenn komu merki í hval- inn í Eyjafirði 21. okóber í haust og hefur síðan þá verið fylgst með ferðum skepnunnar. Hvalurinn var lengi í Stakksfirði út af Keflavík og síðan við Ölfusárósa, ásamt fleiri hvölum samkvæmt frásögnum fuglafræðinga. „Virkni í merkingu í hval hér við land hefur aldrei haldist svona lengi og þetta gefur okkur mikilsverðar upplýsingar,“ segir Gísli. Hnúfubakur syndir um 100 sjómílur á sólarhring Ferðir hnúfubaksins „ÞETTA eru mun verri hamfarir en það sem við höfum áður tekist á við, þetta virðast ætla að verða ein- hverjar mestu hamfarir í mjög, mjög langan tíma,“ segir Gísli Rafn Ólafsson, einn stjórnenda íslensku rústabjörgunarsveitarinnar á Haítí. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, hefur sagt hamfar- irnar á Haítí þær mestu í áratugi. Íslenska sveitin hefur nú fært sig um set til borgarinnar Léogane þar sem eyðileggingin er jafnvel meiri en í höfuðborginni. Að sögn Sam- einuðu þjóðanna hafa 43 björgunar- sveitir grafið yfir 70 manns á lífi úr rústunum síðan skjálftinn varð. Vandamálin halda hinsvegar áfram að hrannast upp á Haítí og það gera líkin líka og ríður á að losna við þau áður en smitsjúk- dómar brjótast út. Sumstaðar hafa lík verið grafin eða brennd, en um leið er þá komið í veg fyrir að unnt verði að bera kennsl á hina látnu. Straumur hjálpargagna er þó orðinn stríðari til landsins og hjálparstarfið samhæfðara. Samein- uðu þjóðirnar hyggjast boða til alþjóðaráðstefnu um aðstoð við Haítí. Mestu hamfarir í áratugi  Hjálparstarf nú komið á góðan skrið  Óvissa um hvað gera á við líkin Reuters Messa Íbúar Haítí sameinast í bæn.  Gríðarleg eyðilegging | 2  Hætta á faraldri | 12 Snæfell, ÍR og Grindavík komust í undanúrslit bikarkeppninnar í körfuknattleik karla. Haukar, Keflavík og Njarðvík komust áfram í keppni kvennaliða. Háspennuleikur í Stykkishólmi Alþjóðlegt íþróttamót fór fram um helgina í Reykjavík og tókst fram- kvæmdin vel. Um 2.000 manns tóku þátt í mótinu, þar af voru um 300 erlendir keppendur. ÍÞRÓTTIR Alþjóðlega mótið heppnaðist vel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.