Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 21
Dagbók 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 Sudoku Frumstig 4 7 3 5 7 1 7 3 2 8 6 4 2 6 1 5 4 2 2 5 3 8 7 1 6 1 4 3 6 6 7 9 1 8 5 8 4 5 1 6 7 9 9 3 5 7 4 5 6 8 9 6 9 1 8 2 3 6 7 2 5 3 9 8 5 3 5 8 9 7 7 6 5 1 5 3 9 8 2 7 6 4 6 2 4 3 7 5 1 9 8 7 8 9 6 1 4 5 3 2 5 9 8 7 4 3 6 2 1 4 1 7 2 5 6 3 8 9 3 6 2 1 9 8 4 7 5 9 4 5 8 3 7 2 1 6 8 3 6 4 2 1 9 5 7 2 7 1 5 6 9 8 4 3 7 6 8 4 3 2 1 9 5 2 3 5 1 7 9 4 6 8 9 4 1 5 8 6 3 7 2 6 9 4 8 5 3 7 2 1 8 7 2 9 4 1 6 5 3 5 1 3 6 2 7 8 4 9 1 2 9 7 6 8 5 3 4 4 8 7 3 9 5 2 1 6 3 5 6 2 1 4 9 8 7 7 4 5 3 1 9 8 2 6 6 1 9 8 2 7 4 3 5 2 3 8 6 4 5 1 7 9 1 8 4 9 6 2 7 5 3 3 2 7 1 5 4 9 6 8 5 9 6 7 8 3 2 4 1 9 7 2 5 3 8 6 1 4 8 6 3 4 7 1 5 9 2 4 5 1 2 9 6 3 8 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 18. janúar, 18. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yð- ur, því að þér trúið ekki þeim, sem hann sendi. (Jóh. 5, 38.) Afleiðingar jarðskjálftans á Haítíeru hrikalegar. Engin leið er að segja til um hve margir hafa látið líf- ið. Tjónið nær til milljóna manna. Landið er ekki í neinni stöðu til þess að takast á við vandamál af þessari stærðargráðu. Heilbrigðiskerfið er ónýtt, samgöngur í rúst og stjórn- kerfið óvirkt. Aðstoð var of lengi að berast og nú þegar hún er komin er erfitt að koma henni til fólksins. Að- eins ein flugbraut er nothæf á flug- vellinum (þó lenda 200 vélar og taka á loft á hverjum degi), helsta bryggj- an í höfninni brotnaði í hafið og rúst- ir húsa liggja á vegum og stöðva um- ferð. Stórslasað fólk hefur enn ekki komist undir læknishendur. x x x Íbúar Haítí hafa áratugum samanbúið við ófremdarástand; spillt og ónýtt stjórnvald. Duvalier- feðgarnir voru illræmdir fyrir stjórnarhætti sína. Francois Duval- ier, kallaður Papa Doc, var kosinn forseti 1957. Jean-Claude Duvalier, kallaður Baby Doc, tók við 1971 og var við völd þar til hann var flæmdur úr landi 1986. Í tæp þrjátíu ár rændu þeir og rupluðu og voru þekktir fyrir spillingu og mannréttindabrot. Ástandið skánaði eftir að Haítíbúar losnuðu við feðgana, annað var ekki hægt, en þrautagangan hélt samt áfram. Skipst hafa á kosningar og valdarán. Í hittifyrra brutust út óeirðir vegna matarskorts. Á meðan flest ríki heims glímdu við fjár- málakreppu haustið 2008 fengu íbú- ar Haítí yfir sig tvo fellibylji. Tjónið nam 15% af þjóðarframleiðslu þessa fátæka lands. Tjónið eftir jarð- skjálftann er ábyggilega mun meira. x x x Íbúar Haítí þurfa á allri þeirrihjálp að halda sem hægt er að veita þeim. Rauði krossinn hefur hafið söfnun fyrir fórnarlömb jarð- skjálftans á Haítí. Á fyrsta sólar- hringnum söfnuðust hátt í níu millj- ónir króna að því er fram kemur á heimasíðu RKÍ. Þörfin er hins vegar gríðarleg. Alþjóða Rauði krossinn hefur aukið beiðni sína um 100 millj- arða dollara eða rúmlega 12 millj- arða króna. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hörfar, 4 kroppur, 7 hitasvækja, 8 skottið, 9 rödd, 11 forar, 13 hlífa, 14 óhræsi, 15 á skipi, 17 mjög, 20 brodd, 22 skerpt, 23 æviskeiðið, 24 virðir, 25 toga. Lóðrétt | 1 hafa stjórn á, 2 skaut, 3 kyrrir, 4 brjóst, 5 þáttur, 6 vit- lausa, 10 önuglyndi, 12 hnöttur, 13 borða, 15 jarðvöðull, 16 með miklu grjóti, 18 segl, 19 skrika til, 20 beinir að, 21 lægð. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kennimann, 8 eldur, 9 getan, 10 tía, 11 dorma, 13 rændi, 15 hlass, 18 sakna, 21 tún, 22 auðnu, 23 ættin, 24 handriðið. Lóðrétt: 2 endar, 3 narta, 4 mágar, 5 nótan, 6 held, 7 unni, 12 mýs, 14 æfa, 15 hrat, 16 auðga, 17 stund, 18 snæði, 19 ketti, 20 asni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f3 O-O 6. Be3 a6 7. Dd2 Rbd7 8. Rge2 c6 9. Bh6 b5 10. h4 Bxh6 11. Dxh6 e5 12. h5 b4 13. Ra4 d5 14. O-O-O De7 15. Dg5 dxe4 16. Rg3 exd4 17. Rf5 De5 18. g4 d3 Staðan kom upp á rússneska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Nikita Vitiugov (2694) hafði hvítt gegn Denis Khismatullin (2643). 19. Rb6! De6 svartur hefði tapað drottningunni eftir 19…Rxb6 20. Rh6+. 20. Dh6 gxf5 21. gxf5 Dxf5 22. Hg1+ og svartur gafst upp enda mikið liðstap óumflýjanlegt. Taflfélagið Hell- ir heldur sínu mánaðarlegu hraðkvöld í kvöld, mánudaginn 18. janúar. Nánari upplýsingar um starfsemi Hellis og annarra taflfélaga á landinu er að finna á www.skak.is. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Lýsandi opnun. Norður ♠ÁG7632 ♥62 ♦KG105 ♣G Vestur Austur ♠54 ♠K1098 ♥ÁK98 ♥1074 ♦D986 ♦Á432 ♣1063 ♣72 Suður ♠D ♥DG53 ♦7 ♣ÁKD9854 Suður spilar 3G. Í upprunalegu Precison-kerfi gegnir opnun á 2♣ því tvíþætta hlutverki að koma til skila laufhöndum og létta um leið á tígulopnunni. Svo vel hefur þessi opnun dugað að snillingar nútímans hafa flestir lagt hana til hliðar. Í einum leik Reykjavíkurmótsins vakti suður á Precison-tígli á báðum borðum. Sú lýs- andi sögn dugði til að leiða N-S á rétt- an stað – í 3G. Norður varð sagnhafi á öðru borðinu og fékk níunda slaginn á tígulútspili. Hinum megin vörðust Sveinn Rúnar Eiríksson og Ómar Olgeirsson vask- lega. Sveinn kom út með ♥Á og Ómar varðaði við framhaldi með ♥10. Sveinn skipti þá yfir í spaða, sem sagnhafi varð að hleypa. Ómar notaði innkom- una á ♠K til að spila hjarta og Sveinn rak endahnútinn á frækilega vörn með því að dúkka drottningu sagnhafa. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Nú skiptir öllu að nýta tímann vel og halda sér við efnið svo að þú náir að standa við gefin loforð. Félagslífið er í blóma. Gættu þó hófs. (20. apríl - 20. maí)  Naut Frítímann áttu ein/n og þá þarftu ekki að gera annað en það sem þú vilt. Kvöldið verður frábært. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú gætir fengið stöðuhækkun brátt. Peningar eru af skornum skammti en reyndu engu að síður að horfa björtum augum á framtíðina. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þig langar til að láta meira að þér kveða í samfélaginu. Viljirðu vinna þig í álit skaltu samt reyna aðrar leiðir en þú hefur farið áður. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ættir að taka þér tíma til þess að fara í gegn um eitt og annað sem hefur komið þér á óvart í samskiptum þínum og vina þinna. Bjartir og fallegir hlutir höfða sérstaklega til þín. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þér finnst eins og allir hafi skoð- anir á því sem þú ert að gera án þess að þeim komi það nokkuð við. Stuðningur maka þíns skiptir þig öllu máli. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Farðu varlega í öllum viðskiptum og þá sérstaklega fasteignaviðskiptum. Taktu tillit til þess sem aðrir leggja til mála, það gæti hjálpað, en haltu svo þínu striki til loka. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það gætu komið upp erf- iðleikar sem reyna á andlegan styrkleika þinn. Sinntu skyldum þínum af kostgæfni áfram eins og þú hefur gert og reyndu að sjá björtu hliðarnar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þótt ekki sé nauðsynlegt að vita öll smáatriði kemur sér þó vel að vita í stórum dráttum hvað framundan er. Leyfðu þér að gera ekki neitt. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er hollt að vera jafnan við öllu búin/n, njóttu velgengni þinnar. Nú er rétti tíminn til þess að nota innsæið og bjóða fram aðstoð. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú hefur úr fjölmörgum tæki- færum að velja og þarft ekki að óttast að þú ráðir ekki við hlutina. Gleymdu þó ekki í allri gleðinni þeim sem treysta á þig. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Láttu ekki sögusagnir ná þeim tök- um á þér að þú hlaupir upp til handa og fóta áður en þú kannar hvað í þeim felst. Stjörnuspá 18. janúar 1930 Hótel Borg tók til starfa þegar veitingasalirnir voru opnaðir, en gistihúsið var tekið í notk- un í maí. Hótelið var sagt „meiri háttar gisti- og veit- ingahús“ en það var reist „vegna væntanlegrar gesta- komu, mikillar og virðu- legrar“ til Alþingishátíð- arinnar, sagði í Árbókum Reykjavíkur. 18. janúar 1937 Snjódýpt í Reykjavík mældist 55 sentímetrar sem er það mesta síðan mælingar hófust í borginni. „Fannkoman hefur verið geysimikil,“ sagði Morg- unblaðið og gat þess að fjögur hundruð manns hefðu unnið að snjómokstri á götum bæj- arins. 18. janúar 1986 Flugfreyjur gleymdust þegar vél Flugleiða fór frá Reykja- vík til Egilsstaða. Vélin var yf- ir Þingvöllum þegar þetta kom í ljós og var henni snúið við til Reykjavíkur og flug- freyjurnar sóttar. 18. janúar 2003 Vefútgáfa Íslendingabókar var opnuð almenningi. Á fyrstu klukkustundinni sóttu þrjú þúsund manns um að- gang og tugir þúsunda næstu daga. Í Íslendingabók eru upp- lýsingar um 95% Íslendinga síðustu þrjár aldir og helming allra frá landnámi. 18. janúar 2009 Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, 33 ára, var kosinn formaður Framsóknarflokks- ins með 449 atkvæðum. Hösk- uldur Þórhallsson hlaut 340 atkvæði. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … GUNNAR Kristjánsson, prófastur á Reynivöllum í Kjós, er 65 ára í dag. Hann gerði sér glaðan dag um helgina og bauð nánustu fjölskyldu í kaffi. Í dag hyggst hann hinsvegar lítið gera úr af- mælinu enda ber það upp á vinnudag og Gunnar hefur nóg fyrir stafni. „Kjalarnesprófastsdæmi er mjög fjölmennt, með nærri 70 þúsund íbúa, svo það er ýmislegt að gera,“ segir Gunnar. Auk emb- ættisverkanna hefur Gunnar fengist töluvert við skriftir í gegnum tíðina og nú er hann með stórt verk í smíðum en það er bók um Martein Lúther. „Ég hef verið að vinna að þessu undanfarin ár og lýk því vonandi á þessu ári. Þetta á að vera bók um ævi Lúthers og starf, hvernig áhrif hans bárust hingað til Íslands og í hverju þessi áhrif felast á íslenska menningu í breiðum skilningi.“ Sjálfur telur Gunnar að það muni koma mörgum á óvart hversu brýnt erindi Lúth- er á til okkar enn í dag, t.a.m. áhersla hans á rökræðuna. „Rökræðan er kannski eitt sterkasta einkennið í lútherskri trúarmenningu og hana mættum við tileinka okkur betur. Annað sem einkennir líka mjög lútherska guðfræði er að greina á milli manna og málefna.“ Stefnt er að útgáfu bókarinnar seint á þessu ári. una@mbl.is Séra Gunnar Kristjánsson 65 ára Skoðar áhrif Lúthers á Íslandi Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.