Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 „BJARNFREÐARSON KOM MÉR EKKI LÍTIÐ Á ÓVART. MÉR FANNST HÚN GEGGJUÐ!“ KVIKMYNDIR.IS-T.V. MUR EIN BESTA GAMANMYND ÁRSINS! GEORG, ÓLAFUR RAGNAR OG DANÍEL ERU KOMNIR Í BÍÓ! BJARNFREÐARSON HHHH MEINFYNDIN... – FRÉTTABLAÐIÐ/ BERGSTEINN SIGURÐSSON HHHH ÞAÐ VAR LAGIÐ! – DV/DÓRI DNA BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ! SÝND Í ÁLFABAKKA YFIR 55.000 GESTIR ELLEN PAGE úr JUNO er stórkostleg í þessari frábæru mynd HHHH “ELLEN PAGE ER STÓRKOSTLEG” - NEW YORK DAILY NEWS HHH “MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ” - ROGER EBERT nánari upplýsingar ásamt sýnishornum úr stykkjunum má finna á www.operubio.is og á www.metoperafamily.org CARMEN ENDURSÝND MIÐVIKUDAGINN 20. JAN. KL. 18:00 ATH! VÆNTANLEGA ÖNNUR AUKASÝNING 3. FEBRÚAR FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA SCREAM OG I KNOW WHAT YOU DID LAST SUMMER ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS! SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK Stórkostleg teiknimynd þar sem Laddi fer á kostum í hlutverki ljósflugunnar Ray Frá höfundum Alad- din og Litlu hafmey- junnar kemur nýjasta meistaraverk Disney MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI SHERLOCK HOLMES kl. 8 -10:40 12 BJARNFREÐARSON kl. 8 L AVATAR kl. 10:20 10 SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 12 BJARNFREÐARSON kl. 8 - 10:20 L SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 12 BJARNFREÐARSON kl. 8 L SORORITY ROW kl. 10:20 16 UPPSELT ÖRFÁ SÆTI LAUS FM91,9 OG FM103,9 Í REYKJAVÍK. FM93,9 Á AKUREYRI. FM92,9 Á SELFOSSI. FM104,7 Í VESTMANNAEYJUM. FM103,2 EGILSTÖÐUM DIGITAL ÍSLAND OG BREIÐBAND SÍMANS UM ALLT LAND. STREYMI Á KANINN.IS FRÉTTIR FRÁ SKJÁ EINUM 18:15 KANINN: BESTA TÓNLISTIN, FRÉTTIR OG SKEMMTILEGASTA FÓLKIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ 13.00 - 16.00 GUNNA DÍS Hljómsveitakeppnin GlobalBattle of the Bands hófstá föstudaginn og er þettaí sjötta sinn sem hún er haldin. Til mikils er að vinna en sigur gefur sæti í úrslitakeppninni í Lond- on sem fram fer í apríl. Auk þess er ýmsan ávinning annan hægt að hafa af keppninni. Hver sveit lék tvö lög og sú fyrsta á svið fyrra undan- úrslitakvöldið var O.D. Avenue. Tón- listin var í flækjulegum Tool-gír og nokkuð stirðbusaleg sem slík. Hin ægiskemmtilega Bárujárn, með sína einstöku útgáfu af brimbrettarokki, átti síðan erfitt með að fóta sig í fyrsta lagi en rann af stað í því seinna. Draumhvörf léku fjölskipta og framúrstefnulega tónlist og gott ef andi Agent Fresco, sigurvegara Mús- íktilrauna 2008 og fulltrúa Íslands í GBOB sama ár, sveif ekki yfir vötn- um. Ýmislegt þarf þó að útfæra betur í hljóm sveitarinnar og þetta var allt saman fremur grautarlegt. Mikado var á svipuðum slóðum en ólíkt und- anfaranum var allt mun hnitmiðaðra. Hljóðfæraleikur var í góðu lagi og fínar pælingar í gangi. Þetta er band sem vert er að fylgjast með. Myrká spilaði drungalegt gotarokk og stát- aði af söngkonu en var ekki sér- staklega sannfærandi. Nögl kom síð- an afar ákveðin til leiks og spilaði sitt ástríðufulla háskólarokk af mikilli sannfæringu og þéttleika. Alefli var að öðrum ólöstuðum skemmtilegasta band kvöldsins, kornungir strákar að reyna sig við Iron Maiden-rokk. Áhuginn var ósvikinn og þetta kemur með meiri æfingu. Blinking Num- bers lauk síðan kvöldinu með stefnu- lausu proggi frá helvíti. Þrjú progg- bönd stigu á svið á átta sveita kvöldi. Ég hélt að kreppuástand gæti af sér reiða pönkara en þess í stað fáum við djúpspaka proggrokkara á unglings- aldri!? Merkilegt. Leikar fóru svo þannig að salurinn valdi Nögl áfram en dómnefnd hleypti Mikado og Bárujárni áfram. Laugardagur Fyrsta sveit á svið var þungarokks- sveitin Wistaria, sem leikur „metal- core“ að hætti NWOAMH-sveita eins og Lamb of God o.fl. Sveitin er orðin geysiöflug og tók kvöldið eiginlega í nefið. Söngvarinn var mjög góður og í raun var ekkert út á leik sveit- arinnar að setja, þéttleikinn var slík- ur að ekki rann vatn á milli. Univer- sal Tragedy var á fornum slóðum, réttur kvöldsins var sígilt dauðarokk af gamla skólanum en það vantar meira bit í lagasmíðarnar. Útidúr var á allt annarri línu, lék djassað ind- ípopp sem rann ljúflega, nánast þreytulega áfram. Útgeislun af sviði hefði að ósekju mátt vera meiri. We Made God olli vonbrigðum, þetta reynsluríka band komst aldrei á flug. Sömu örlög biðu Bræðra Svartúlfs. Þá var komið að The Vintage sem sló eftirminnilega í gegn í síðustu Mús- íktilraunum, einkum sökum ótrúlegr- ar fimi gítarleikarans. Blúsrokk hennar var þó ekki að gera sig þetta kvöldið og það gengur ekki að lögin séu bara hólkar utan um annars frá- bær gítarsólóin. Endless Dark frá Ólafsvík var aftur á móti á feikna- flugi. Söngvari sveitarinnar er hik- laust einn allra besti rokksöngvari landsins í dag; getur snarað upp mögnuðum djúpöskrum í bland við ótrúlega melódískan söng eins og ekkert sé. Sveitin fór hamförum á sviði og skilaði sínu með eftirtekt- arverðum glans. Morgan Kane lék órætt rokk (sveitaballanýbylgj- urokk?) sem skildi lítið eftir og Thingtak lauk leik með sprellandi rokktónlist en átti ekki erindi sem erfiði. Salurinn kaus svo Endless Dark áfram en dómnefnd sendi Wist- aria og Útidúr í úrslit. Þau fara svo fram föstudaginn næsta. Sódóma Reykjavík Global Battle of the Bands Undanúrslit hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands, haldin í Sódómu Reykjavík föstudaginn 15. janúar og laugardaginn 16. janúar ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLIST Er proggið nýja pönkið? Á flugi Endless Dark var valin áfram af sal á seinna undanúrslitakvöldinu. Sannfærðir Nögl sigraði örugglega á fyrsta undanúrslitakvöldinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.