Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2010 Á göngu í Laugardalnum Þessi fallegi hundur var einbeittur og vissi upp á hár hvert hann átti að fara með eiganda sinn þegar þeir voru á rölti á útivistarsvæðinu í Laugardalnum. Árni Sæberg Í FRUMSKÓG- INUM verja dýrin af- kvæmi sín og tryggja þeim lífsviðurværi. Það er í eðli þeirra. Mann- skepnan hefur líka til- hneigingu til þess að verja afkvæmi sín en þegar siðmenntun hnignar og fátækt sverfur að verða af- kvæmin oft illa úti. Ég er ekki sérfræðingur í sið- mennt en velti því fyrir mér hvað hugtakið feli í sér. Er það ekki fyrsta skylda hvers manns sem vill teljast siðaður að verja afkvæmi sín, verja velferð komandi kyn- slóðar og ganga ekki á rétt henn- ar? Um þetta snýst kjarni Icesave. Icesave-samningurinn felur í sér í raun að firra núverandi kynslóð vandræðum með því að færa þau á komandi kynslóðir. Þess vegna er frumvarpið um ríkisábyrgð á Ice- save siðlaust. Ríkisvaldið hefur tekið þá stefnu að hræða almenn- ing til þess að taka stöðu með þessu siðleysi. Ríkisvaldið vísar gjarnan til dulúðugrar dómsdags- spár ef skuldir bankamanna verða ekki gerðar að skuldum barna okkar. Með þessu er ríkisvaldið að höfða til óæðri hneigða mannsins sem spretta af hræðslu við hið óþekkta. Ákafi sumra einstaklinga við að leggja óviðráðlegan skuldaklafa á komandi kynslóðir er í ætt við hjátrú. Ef gengið er á þessa ein- staklinga um ástæður þess að leggja skuli þessar byrðar á kom- andi kynslóðir er fátt um skyn- samleg svör. Illa ígrunduð hræðsla og þjónkun við foringja brýst upp á yfirborðið. Sektarkennd yfir að hafa ekki lapið dauðann úr skel á góðæristímabilinu gerir einnig vart við sig. En ekkert af þessu réttlætir að gera komandi kyn- slóðir að skuldaþrælum Breta og Hollendinga. Það er ofar eðlilegum skilningi hvers vegna ríkisstjórninni er svo mikilvægt að fallast á túlkun Breta og Hollendinga á Icesave- vandanum. Hverjum þeim sem kynnt hefur sér atburðarásina og staðreyndir málsins er ljóst að Bretar og Hollendingar hafa rang- túlkað málið til þess að tryggja eigin hagsmuni. Við slíkar aðstæður ætti það að vera hlutverk íslenskra valda- manna að verja þjóðina en þeir hafa brugðist hlutverki sínu og stillt sér í lið með Bretum og Hol- lendingum gegn ís- lensku þjóðinni. Gríðarleg áróð- ursherferð hófst eft- ir hrun íslenska efnahagskerfisins sem miðaði að því að gera þjóðina auðmjúka og efla sektarkennd hennar. Sekt- arkenndin átti að tryggja að þjóð- in beygði sig undir að selja fram- tíð barna sinna fyrir velferð Gordons Brown. Í áróðrinum var höfðað til stolts Íslendinga og að þeir þyrftu að afla sér trausts í alþjóðasamfélag- inu. Staðreynd málsins er hins vegar sú að sá sem selur börnin sín aflar sér ekki trausts með þeim gjörningi nema þá trausts þeirra sem aðhyllast slíka gjörn- inga og hafa hag af slíku. Hinir siðmenntuðu hafa aðra sýn á til- veruna. Þeir eru ekki tilbúnir til þess að gera hina saklausu að fórnarlömbum græðginnar og munu ekki sjá upphefð í því að Ís- lendingar beygi sig undir þennan ósóma. Það var ekki hegðun íslensku þjóðarinnar sem skaðaði orðspor hennar á alþjóðlegum vettvangi heldur glæpahneigð bankamanna og vanvitslegar aðgerðir Gordons Brown. Það er ekki á ábyrgð barna okkar að bæta fyrir siðlaus- ar athafnir þessara manna. Stolt Íslendinga og stolt komandi kyn- slóða verður eingöngu tryggt með því að íslenska þjóðin hafni Ice- save II í þjóðaratkvæðagreiðslu Eftir Jakobínu Ingunni Ólafsdóttur »Er það ekki fyrsta skylda hvers manns að verja afkvæmi sín og velferð komandi kyn- slóðar? Grundvall- arspurning í þjóð- aratkvæðagreiðslu um Icesave. Jakobína Ólafsdóttir Höfundur er doktorsnemi við Háskóla Íslands. Siðmennt eða lög- mál frumskógarins SÉRSTAKUR hópur manna og kvenna í Reykjavík kallar sig Samtök um betri byggð. All- sérstakur hópur er þetta þar sem að- eins þrír herramenn sitja við skriftir í tíma og ótíma til að vinna að því að leggja niður eina mikilvægustu tengibraut Íslend- inga, Reykjavíkurflugvöll og byggja „blandaða byggð“ á svæð- inu í staðinn. Stóryrðin eru ekki spöruð og stærðfræðin og tilvitnanir bornar fram af hinni mestu snilld. Þar eru peningar búnir til í milljörðum og landsbyggðinni kennt um að taka milljarða frá Reykvíkingum. Þeim sést alveg yfir að landsbyggð- arfólkið skaffar þeim stóran hlut í uppbygginguna í Reykjavík. Reykjavík er verslunarbær að mestu leyti en landsbyggðin skap- ar verðmætin fyrir þjóðina að stærstum hluta og megnið af fénu fer til Reykjavíkur. Svo Reykvík- ingar geti þjónustað landsbyggðina þurfa sölumennirnir, viðgerð- armennirnir og fleiri að komast á milli. Þeir nota flugþjónustuna, þeim liggur á. Þetta er stór hópur manna og kvenna. Landsbyggð- arfólkið þarf að sækja alla þá þjón- ustu sem stjórnvöld allra lands- manna hafa sett niður í Reykjavík, hvort sem það er stjórnsýslan eða sjúkrastofnanir. Þetta allt er byggt í Reykjavík fyrir fé allra lands- manna. Þar eru milljarðarnir sem þremenningarnir ættu að líta til. Mistökin í öllu skipulagi borg- arinnar ríður varla við einteyming. Þremenningunum dettur í hug að það verði byggt atvinnuhúsnæði og íbúðir í Vatnsmýrinni, sem standi til framtíðar. Nei, skoðið borgina og sjáið að aftur og aftur er blönd- uð byggð skipulögð, en eftir fáein ár er búið að hrekja fyrirtækin lengra og lengra út fyrir borgina. Sama sagan endurtekur sig í sí- fellu. Þá dreymir um að umferð dragist saman um 40% með til- heyrandi minnkun mengunar. Barnaskapur eða draumórar? Fullyrð- ingar um að 9% lands- manna noti flugvöllinn. Þetta er eins og að lesa Sólon Íslandus, þar sem Sölva tókst að reikna barn í konu og úr henni aftur. Þeir lesa flug- tölur eins og fjandinn les Biblíuna. 427.000 farþegar 2008 eru 9% þjóðarinnar í reikni- vélum þeirra. Þremenn- ingarnir verða að vera raunsæir og viðurkenna hrein- skilnislega að þetta er höfuðborg Íslendinga allra og hefur samsvar- andi skyldur við alla landsmenn. Er ekki í undirbúningi að byggja risasjúkrahús í Reykjavík fyrir fé allra landsmanna, nota lífeyrissjóð- ina okkar í það? Hvar er aðgengið að því sjúkrahúsi? Á að leggja höft á landsbyggðina að sækja þjón- ustuna? Vatnsmýrin er flatlent mýr- arstykki. Er það áhugavert að eiga heima þar með útsýni í næsta hús- vegg eða eldhúsglugga næsta húss? Kannski er næsti áfangi þre- menninganna að leggja undir sig Öskjuhlíðina. Ófært að hafa óbyggt byggingarsvæði svo nálægt mið- borginni, sem fólk af landsbyggð- inni gæti farið að rölta um. Það er sama hvar nýr flugvöllur verður settur niður, með tímanum verða aðrir þremenningar komnir með drauma um að skipuleggja það svæði fyrir „blandaða byggð“. Flugvöllinn til Keflavíkur, heyr á endemi. Einum hollvini Keflavík- urflugvallar tókst, með sömu reiknivél og þremenningarnir nota, að komast að því að það væri fljót- legra að ferðast frá Keflavík- urflugvelli en Reykjavíkurflugvelli í miðborg Reykjavíkur. Hvílík firra. Járnbrautarlest Keflavík/ Reykjavík? Jú með reiknivél þre- menninganna er það gerlegt. Reykvíkingar, með aðstoð Björgólfs og Landsbankans sáluga, ákváðu að byggja sér tónlistarhús, Tónlistarhúsið í Reykjavík. Þegar Björgólf brast fé, hvað átti þá til bragðs að taka til að bjarga fjár- málum Reykvíkinga? Jú, leita til allra landsmanna. Að nóttu til var málað yfir gamla nafnið og því breytt í Tónlistarhús allra lands- manna. Þá var landbyggðin nógu góð til að punga út fé fyrir æv- intýramennsku nokkurra íbúa höf- uðborgarinnar. Græðgin allsráð- andi þar. Ef landsbyggðarmenn eiga að sækja í þessa eign sína, Tónlistar- húsið, er möguleiki á að koma fljúgandi til Reykjavíkur, sækja konsert eða aðra skemmtan þar, og fljúga heim að því loknu. En stað- reyndin er sú og neiti því hver sem á góða reiknivél: innanlandsflug leggst af með öllu verði flugvöll- urinn fluttur til Keflavíkur. Því fylgir sú kvöð á alla sem ætla að sækja lögbundna þjónustu sína af landsbyggðinni, þurfa að aka á milli. Mengun og aftur mengun, tímasóun og meiri tímasóun. Þremenningunum er nær að vinna að og nota arkitektaþekk- ingu sína í að gera umferðarmann- virki í Reykjavík af viti. Hvar í heiminum eru byggðar umferð- arbrýr, þar sem hægribeygja er útilokuð, en þeirri umferð beint undir brúna og þar í vinstribeygju og umferðarljós áfram á gatnamót- unum? Hvergi! Greiðari umferð, minni mengun. Borgarstjórn Reykjavíkur og þremenningarnir verða að fá sér aðra reiknivél og kynna sér rétt- indi og skyldur höfuðborgar lýð- ræðissamfélags, sýna lands- mönnum öllum sanngirni. Umræðan hefur of lengi snúist eingöngu um sjúkraflugið. Það er engu að síður númer eitt varðandi flugvöllinn. En það eru þúsundir annarra landmanna sem þurfa að ferðast með flugi til og frá Reykja- vík. Flugvöllurinn er mjólkurkýr allra landsmanna, ekki bara nokk- urra hagsmunaaðila, sem ekki þekkja til landsins ofan Elliðaá. Eftir Önund Jónsson »Er ekki í undirbún- ingi að byggja risa- sjúkrahús í Reykjavík fyrir fé allra lands- manna, nota lífeyr- issjóðina okkar í það? Önundur Jónsson Höfundur er yfirlögregluþjónn og er flugfarþegi af landsbyggðinni. Samgöngumiðstöð allra landsmanna – Reykjavík- urflugvöllur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.