Svanir - 01.05.1939, Page 8
6
því moldin lifir. — Og landið það
var Ijóðrænt í dag og í gær.
Ef tæknin, efnið og andans magn
fer einhuga sömu leið,
slær frjóvgandi Ijósi á landsins gagn
og léttara verður hvert skeið.
í samæfing manna á huga og hönd
skal heyra framtímans þyt,
er reiðir að draugunum refsivönd,
en ræktar hið gjöfula vit.
í samstilltri för er sigurhrós
til sóknar og varnar, til alls,
sem lifir og hrærist við yzta ós
og inn til heiðardals.
Og hollvættur íslands, hin hvíta dís
— hún heimsækir Borgarfjörð,
er næsti dagur úr djúpinu rís,
og dásamar slíka jörð:
með frjóríka mold og fiskiár
og fossanna máttuga spil,
með himnesk sólbros um heiðanna brár.
og hveranna jarðneska yl.
Og viti það öll hin unga sveit,
sem er og verður þar til,
að framsækni hennar á fyrirheit,
sem fossinn með kraftarins spil:
hver dropi í s amr una verk sitt veit
og veitir því fyllstu skil:
að gera hvert hrjóstur að græðireit
með gróanda, Ijósi og yl.