Svanir - 01.05.1939, Side 9
Drög til sögu U.M.S.B.
Eftir Pál Zóphóníasson og Bjarna Ásgeirsson.
Aðdragandi.
Árið 1912, vikuna 29. janúar til 4. febrúar, var bænda-
námsskeið haldið á Ilvanneyri. Þar voru saman komnir
margir af leiðandi mönnum ungmennafélaganna í Borgar-
fjarðarhéraði. Þá hefjast með þeim umræður um nauð-
syn þess, að koma á sambandi meðal ungmennafélaganna í
héraðinu. Umræður þessar leiddu til þess, að föstudaginn
2. febi'úar kl. 6 e. h., var haldinn fundur með öllum ung-
mennafélögum, er voru á námskeiðinu, og nokkrum úr
U. M. F. íslendingi, til að taka ákvarðanir um mál þetta.
Á fundi þessum voru staddir félagar úr 7 félögum í
héraðinu, og var þar ákveðið, að þeir allir, hver í sínu
félagi, leituðu undirtekta um stofnun héraðssambands. —
Síðan skyldu þeir tilkynna Ungmennafélagi Reykdæla und-
irtektirnar, en það átti að leita samskonar undirtekta hjá
þeim fjórum félögum, er engir félagsmenn voru mættir
frá á fundinum. Síðan skyldi Ungmennafélag Reykdæla, —
sem var elzta félagið, — gangast fyrir fundi, þar sem
mættir væru fulltrúar frá félögunum, til þess að taka
ákvarðanir um málið.
Stofnfundurinn 26. apríl 1912.
Til þessa fundar boðaði U. M. F. Reykdæla, og var hann
haldinn að Hvítárbakka 26. apríl 1912. Þar voru mættir
fulltrúar þeir, sem hér eru taldir, og voru þeir frá eftir-
töldum félögum.
Frá U. M. F. Reykdæla: Andrés Eyjólfsson, Síðumúla,
og Jón Hannesson, Deildartungu.
Frá U. M. F. Dagrenning: Björn Guðmundsson á Eyri
og Þorsteinn Tómasson á Skarði.
Frá U. M. F. íslendingi: Páll Zóphóníasson, Hvanneyri,