Svanir - 01.05.1939, Page 11
9
þarna áttu fulltrúa, þátttöku sína í sambandinu, og auk
þess U. M. F. Brúin í Hálsasveit.
Starfsemin fyrsta árið.
Um starfsemi sambandsins þetta ár má geta þess, að
sunnudaginn 8. september er að tilhlutun stjórnarinnar
haldinn að Hvítárbakka umræðu- og skemmtifundur fyrir
ungmennafélagana aðeins. íþróttir fóru ekki fram aðrar
en þær, að nokkrir piltar syntu vestur yfir Hvítá og til
baka aftur. Annars fóru þarna fram ræðuhöld, söngur og
almennar skemmtanir. Á þessum fundi var mikið rætt um
framtíðaríþróttamót sambandsins, form þeirra og fyrir-
komulag, og þeir Páll Zóphóníasson, Bjarni Ásgeirsson og
Níels Hallgrímsson kosnir til að athuga málið, og leggja
ákveðnar tillögur fyrir aðalfund, um fyrirkomulag
íþróttamótanna, í hvaða íþróttum skyldi keppa, hvernig
haga skyldi verðlaunum o. s. frv.
Fyrsti aðalfundur 8. og 9. febrúar 1913.
Fyrsti aðalfundur fél. er haldinn að Hvanneyri og hófst
8. febrúar 1913, kl. 1 e. h. Á fundi þessum voru mættir full-
trúar fyrir öll sömu félög og voru á Hvítárbakkafundin-
um. — Voru þeir: Andrés Eyjólfsson og Jón Ilannesson
(U. M. F. Reykdæla), Björn Guðmundsson og Þorsteinn
Tómasson (U. M. F. Dagrenning), Árni Böðvarsson og
Eyjólfur Sigurðsson (U. M. F. Hvöt), Jóhann Jónatansson
og Magnús Sigurðsson (U. M. F. Björn Hítdælakappi),
Bjarni Ásgeirsson og Níels Hallgrímsson (U. M. F. Egill
Skallagrímsson), Guðmundur Jóhannsson (U. M. F.
Baula), Páll Zóphóníasson, Vigfús Guðmundsson og Ingi-
mar Jóhannesson (U. M. F. íslendingur). Frá U. M. F.
Brúnni voru engir fulltrúar mættir, en það hafði tilkynnt
þátttöku sína í sambandinu (U. M. S. B.) — I þessum 8
félögum voru þá 358 félagsmenn. Þrjú önnur félög voru þá
á svæðinu: U. M. F. Akraness, sem ekki taldi sig geta
tekið þátt í sambandsstarfinu, sökum afstöðu félaga sinna
til fundarsókna o. fl., og U. M. F. Borgarhrepps og Staf-