Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 14
12
steinsson, líka úr Islendingi — og fengu báðir verðlauna-
peninga. — I öðrum íþróttum var ekki keppt á þessu fyrsta
móti.
Þá hefir verið skýrt allrækilega frá fyrstu stofnfund-
um og fyrsta aðalfundi sambandsins og fyrsta íþróttamóti
þess.
Síðara starf og stjómir.
Síðan hafa árlega verið háð íþróttamót í héraðinu og
stjórn U. M. S. B. alltaf haft forgönguna, og formaður
þess stjórnað mótunum. íþróttum, sem keppt hefir verið
í, hefir smátt og smátt fjölgað. 1914 kepptu konur kapp-
sund, þá bættust líka við stökk og jafnframt var fjölgað
verðlaunum, er veitt voru.
Stjórnir sambandsins hafa verið:
1914: Formaður Páll Zóphóníasson, meðstjórnendur Jón
Hannesson og Bjarni Ásgeirsson.
1915: Formaður Andrés Eyjólfsson, meðstjórnendur
Páll Zóphóníasson og Jón Hannesson.
1916: Formaður Páll Zóphóníasson, meðstjórnendur
Guðmundur Jónsson, Skeljabrekku, og Sigurður Sigurðs-
son, Lambhaga.
1917: Formaður Jón Hannesson, meðstjórnendur Páli
Zóphóníasson og Guðmundur Jónsson.
1918: Formaður Guðmundur Jónsson, meðstjórnendur
Páll Zóphóníasson og Jón Hannesson.
1919: Formaður Kristinn Guðmundsson frá Skelja-
brekku, meðstjórnendur Páll Zóphóníasson og Vigfús Guð-
mundsson, Eyri.
1920: Formaður Jóhannes Jónsson, Efranesi, meðstjórn-
endur Kristinn Guðmundsson og Steingrímur Steinþórs-
son, Hvanneyri.
1921: Formaður Björn Guðmundsson, Eyri, meðstjórn-
endur Sigurður Snorrason, Húsafelli, og Magnús Jakobs-
son, Varmalæk.
Ungmennafélag Stafholtshrepps gekk í U. M. S. B. árið
1914, Ungmennafélag Borgarhrepps árið 1921 og Ung-