Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 44
40
VII. Póstferðir.
Þegar ég man fyrst eftir, gengu póstar landveg frá
Reykjavík norður og vestur um land. Báðir fóru hér
um Norðurárdal. Norðanpóstur norður um Holtavörðu-
heiði, en Vestanpóstur vestur um Bröttubrekku. Voru
þá farnar 15 póstferðir á ári. Norðanpóstur var stund-
um með um 20 hesta undir koffortum, einkum í des-
ember og janúar. Ferðamenn að sunnan og norðan hyllt-
ust til þess að vera með póstunum eða í kjölfari þeirra.
Voru þá oft margir á ferð um póstferðirnar og gestkvæmt
á ýmsum bæjum í Norðurárdal. Eftir að sæmilegt lag
komst á skipaferðir milli Borgarness og Reykjavíkur, var
farið að láta póstana norður og vestur ganga frá Borgar-
nesi. Þó var ekki fjölgað ferðum. Það var ekki gert fyrr en
hætt var að flytja póstinn á hestum og farið að flytja hann
á bílum frá Borgarnesi út í sveitirnar.
Nú er póstur sendur frá Borgarnesi einu sinni í viku
að sumrinu, en einu sinni í hálfum mánuði á vetrum út
um héraðið. Þetta er að vísu mikil framför frá því sem
áður var. En póstgöngur þessar eru þó strax á eftir tím-
anum, þegar þær komast á. Héðan úr Norðurárdal tekur
hálfan mánuð að fá svar við bréfi úr Borgarnesi eftir
leiðum póstsins. En bílar ganga f jórum sinnum í viku, eins
og fyr segir, með afurðir og verzlunarvörur bændanna.
VIII. Félög bænda.
Ellefta dag marzmánaðar 1890 var stofnað, að Hamri í
Þverárhlíð, búnaðarfélag fyrir Norðurárdal og Þverárhlíð.
1 stjórn voru kosnir: Gísli Einarsson, prestur í Hvammi,
Þorsteinn Davíðsson, bóndi á Arnbjargarlæk, og Þorsteinn
Hjálmarsson, bóndi í Örnólfsdal. 1903 var félaginu skipt í
tvö félög og þá stofnað Búnaðarfélag Norðurárdals, 30. dag
ágústmánaðar. í stjórn félagsins voru kosnir: Gísli Ein-
arsson, prestur í Hvammi, form., Jóhann Eyjólfsson, bóndi
í Sveinatungu og Jón Eyjólfsson, bóndi á Háreksstöðum.
Frá 1890—1903 hefi ég ekki skýrslur um unnar jarða-
bætur í félaginu. En gerðabók sýnir, að félagið hefir haft