Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 51
47
beittu sér fyrir hinum fyrri loforðum til húsbyggingarinn-
ar, að þeir innheimtu ekki strax fjárloforðin. Hefði þá
féð ávaxtazt, þar til byggt var, og orðið all-ríflegt. En
um það er ekki að sakast. Dalbúar voru þess umkomnir
að hrinda þessu máli í framkvæmd, þegar þeir snéru sér
að því, bæði félagslega og fjárhagslega. Nokkrir menn,
sem voru fluttir burtu úr sveitinni, studdu að því að koma
upp húsinu, með fjárframlögum, eins og Jón Brynjólfs-
son, Eyjólfur Jóhannsson frá Sveinatungu, bræðurnir frá
Dysey, Ólafur og Albert Ólafssynir og fleiri trygglyndir
gamlir Norðdælingar. — Húsið kostaði kr. 7147,58. — Af
þeirri upphæð lagði ríkið fram sem styrk til skólahúss-
ins kr. 2382,00. Afgangurinn, kr. 4765,58, hefir verið
greiddur af ungmennafélaginu, sveitarsjóði og einstökum
mönnum, eins og fyrr segir, og er hvergi áhvílandi skuld
vegna þessa húss.
XIV. Ungmennafélagið.
Ungmennafélagið Baula er stofnað 1910. Varð það brátt
allfjölmennt, þróttmikið og áhugasamt um hin ýmsu vel-
ferðarmál æskulýðsins, sem þá voru skammt á veg komin
hér í sveit sem annars staðar. Fyrsta átak félagsins var að
glæða menningar-, félags- og skemmtanalíf sveitarinnar.
Kom það brátt upp allmyndarlegu bókasafni. Félag þetta
átti sér ekki langan aldur, hætti það störfum um áramót
1914—’15. Höfuðorsökin til þessarrar hnignunar í félaginu
var brottflutningur fólks úr sveitinni. Á árunum 1911—’15
fluttu burtu þrír áhrifamiklir búendur með öllu sínu fólki.
Menn, sem höfðu verið hér í fararbroddi full 20 ár. Þeir
voru: Séra Gísli Einarsson, Hvammi, Jón Eyjólfsson, Há-
reksstöðum, og Jóhann Eyjólfsson, Sveinatungu. Heimili
þessarra þriggja manna voru mannmörg, 7—10 unglingar
á hverju. Má geta nærri, að lítið hreppsfélag munaði um
minna, og frá þessum heimilum hafði ungmennafélagið
aðalstarfskrafta sína. Ungmennafélagið leggst nú niður og
svo raunalega vill til, að allar bækur félagsins glatast úr
almenningseign.