Svanir - 01.05.1939, Page 57
51
Vigfúsar, bjó á Háreksstöðum fyrir og um 1860, síðar á
Hóli og síðast á Dýrastöðum til 1896 eða ’97. Móðir Jóns,
kona Vigfúsar, var Þorbjörg Jónsdóttir, Skeggjasonar, er
bjó á Hvassafelli hér í dalnum 1860—1875. Jón Vigfús-
son dó árið 1936, eftir langa vanheilsu. Kona Jóns, Sess-
elja, er ættuð úr Árnessýslu. Börn þeirra eru: Ólöf og
Geir.
í Klettstíu býr síðan 1921 Jón Jóhannesson, Jónssonar,
er bjó í Klettstíu frá 1888—1921. Kona Jóns er Sæunn
Klemensdóttir, Baldvinssonar, sem bjó á Hvassafelli frá
1908—1929. Klemens flutti vestan úr Dalasýslu að Hvassa-
felli. Klemens var með athafnamestu bændum sinnar tíð-
ar. Börn þeirra Jóns og Sæunnar eru: Karl Magnús,
Klemens, Jóhannes og Elías. Annað heimilisfólk er María
Helgadóttir, Árnasonar, fyrrum bónda á Hreimsstöðum.
Á Hreimsstöðum býr síðan 1937 Þorsteinn Klemensson
frá Hvassafelli og kona hans, Sigurrós Jónsdóttir, inn-
flutt úr Dalasýslu. — Barn þeirra Þorsteins og Sigurrósar
er Aðalheiður Hörðdal.
Á Dýrastöðum býr síðan 1908 Klemens Jónsson, Klem-
enssonar, fyrrum bónda á Neðri Hundadal í Dalasýslu, og
kona hans, Kristín Þorvarðardóttir, Bergþórssonar, fyrr-
um bónda á Leikskálum í Dalasýslu. — Börn þeirra Krist-
ínar og Klemensar eru: Finnur, búfræðingur, Halldór, bú-
fræðingur, Ásgerður, Kristinn og Guðrún.
1 Hvammi býr síðan 1916 Sverrir Gíslason, búfræðing-
ur, Einarssonar, prests í Hvammi frá 1888—1911, og konu
hans, Vigdísar Pálsdóttur, Pálssonar, fyrrum bónda í Dæli
í Húnavatnssýslu. Kona Sverris er Sigurlaug Guðmunds-
dóttir, Ólafssonar bónda á Lundum. Guðmundur dó vorið
1930. Börn þeirra Sigurlaugar og Sverris eru: Guðmund-
ur, búfræðinemi á Hvanneyri, Andrés, Vigdís, Ólafur, Ás-
geir og Einar. Annað heimilisfólk er: Pétur Jónsson, Lofts-
sonar, sem bjó á Hafþórsstöðum frá 1883—1903. Þórdís
Ólafsdóttir frá Vindási í Kjós, sonur hennar Bragi Sig-
urþórsson og Olaf Hyllestad frá Sogni í Noregi.
I Sanddalstungu býr síðan 1923 Þórarinn Erlendsson