Svanir - 01.05.1939, Qupperneq 60
54
drengskaparmaður og trúr vinum sínum, enda vinsæll í
bezta lagi.
Heimilið var mannmargt og gestkvæmt og börnin voru
mörg. Það var því mikið að starfa fyrir húsmóðurina í
Sveinatungu, Ingibjörgu Sigurðardóttur, konu Jóhanns.
En hún stóð manni sínum eigi að baki um neitt. Við, sem
vorum að alast upp í dalnum um þessar mundir, litum upp
til athafnabóndans Jóhanns í. Sveinatungu, en elskuðum
og virtum húsmóðurina Ingibjörgu Sigurðardóttur.
í Króki býr síðan 1917 búfræðingurinn Brynjólfur
Bjarnason, Einarssonar, er bjó á Skarðshömrum fyrir eða
um 1860—1888 eða ’99. Kona Brynjólfs er Arndís Klem-
ensdóttir frá Hvassafelli. Börn þeirra eru: Lilja, Gísli,
Haraldur, Ragnheiður og Hjörtur.
Á Háreksstöðum býr síðan 1929 Hallgrímur Sigurðsson,
Þorbjarnarsonar, sem bjó á Dýrastöðum frá 1881—1887;
síðast á Helgavatni í Þverárhlíð. Kona Hallgríms er Elín
Ólafsdóttir frá Dysey. Börn þeirra eru: Sigurður og Guð-
rún. Ennfremur býr á Háreksstöðum Sigurður, sonur Hall-
gríms, og kona hans, Þuríður Sigurjónsdóttir, þónda á
Vatnshorni í Haukadal, Dalasýslu. Barn þeirra er Ninna
Breiðfjörð. Annað heimilisfólk er Einar Guðmundsson,
Einarssonar, er bjó í Sanddalstungu 1917—1921.
Á Hóli býr síðan 1907 Gestur Halldórsson, Bjarnasonar
smiðs frá Ásbjarnarstöðum, og kona hans, Guðríður Guð-
laugsdóttir frá Sleggjulæk. Börn þeirra eru: Halldór, Hall-
dóra og Kristján, bílstjóri í Borgarnesi. Annað heimilis-
fólk er: Guðný Ásmundsdóttir, Gíslasonar, er bjó á Dys-
ey og fyrr getur.
Á Hafþórsstöðum býr síðan 1929 Herborg Þórðardóttir,
Þorsteinssonar, er bjó á Glitsstöðum frá 1887—1912. Her-
borg var gift Hákoni Jónssyni; dó hann í jan. 1938. Börn
þeirra Herborgar og Hákonar eru: Þórður og Ágústa,
heima, Sigurjón í Svignaskarði, Hákon á Brennistöðum,
Metta og Hermann, bílstjóri, bæði til heimilis í Reykja-
vík.
Á Skarðshömrum býr síðan 1900 Oddný Árnadóttir,