Svanir - 01.05.1939, Síða 93
83
það. Og með því að gera má ráð fyrir því, að menn hafi
ekki almennt gert sér grein fyrir því máli, skal hér farið
nokkrum orðum um þá hugmynd, eins og hún kemur mér
fyrir sjónir. Vil ég fyrst snúa mér að nokkrum mótbárum,
sem ég hefi heyrt gegn heimavistarbarnaskólunum.
Mönnum er illa við að senda börn sín að heiman á skóla-
heimili. Telja sennilega hættu á því, að þar verði barnið
ekki fyrir eins góðum áhrifum eins og á sínu eigin heim-
ili. Þeim, sem svona hugsa, má benda á það, að margir
verða hvort sem er að koma börnum sínum fyrir að heiman
til kennslu. Og er þá nokkur skynsamleg ástæða til að ætla,
að heimili upp og niður, og jafnvel manns eigið heimili,
sé betur fallið til að hafa góð áhrif á barnið, en þar sem
húsbændur og starfsfólk er valið sérstaklega með það fyr-
ir augum að vera fært til þess? Ég fæ ekki betur séð, en
þessi mótbára falli um sjálfa sig, ef nokkuð er hugsað um
málið.
Aðrir horfa í kostnaðinn. Rétt er það, að allmikið fé
þarf til að koma upp heimavistarskóla, en þess ber þó að
gæta, að ríkið leggur fram allríflegan styrk til þeirra, eða
helming kostnaðar. Hluti hreppanna í stofnkostnaðinum
er liður, sem menn verða að taka á sig, ef þeir vilja börn-
um sínum vel, og finna sóma sinn að bæta úr því ófremd-
arástandi, sem nú ríkir hér í fræðslumálunum. Og með
því að fleiri hreppar mundu sameinast um einn skóla, verð-
ur sá kostnaður varla mjög tilfinnanlegur.
Hvað reksturskostnað snertir, má geta þess, að ríkið
launar að öllu leyti ráðskonu skólans. Kennaralaun myndu
ekki vaxa í heild, þar sem nær helmingi færri kennara
þyrfti til að kenna í sameiginlegum skólum, en nú eru,
enda þótt kennarar yrðu betur launaðir og þar með meiri
trygging fyrir að halda góðum kennurum ár eftir ár. Hvað
snertir meðgjöf með börnum í heimavistinni, má benda á,
að börnin þurfa að borða, hvar sem þau eru, að menn geta
lagt fram fæðiskostnað þeirra í vörum eftir hentugleik-
um, einn mjólk, annar kjöt, þriðji garðávöxt o. s. frv. Þar
sem heimavistarskólar eru komnir á, hefir hver barneig-