Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 94
84
andi verið vanur að leggja til eina kind til slátrunar á
hausti, er það lítt tilfinnanlegt, og munu vanheimtur það
miklar hjá mörgum, að þeim þætti ekki mikið muna um
eina kind til eða frá. Þá er þess enn að gæta, að ekki er
gert ráð fyrir, að hvert barn sé í heimavistinni allan vet-
urinn, heldur er börnunum skipt niður í flokka eftir aldri,
og er um leið tryggt, að hægt sé að haga kennslunni eftir
því, sem bezt á við á hverju aldursskeiði, sem ókleift er,
þar sem aðeins er um sárfá börn að ræða, og marga
kennslustaði.
Þá skal að lokum minnzt stuttlega á, hvernig mér hefir
dottið í hug að skipað verði skólamálum sýslunnar.
Reistir verði þrír heimavistarbarnaskólar: 1 fyrir Hvít-
ársíðu og Þverárhlíð, 1 fyrir Norðurárdal, Stafholtstung-
ur og Borgarhrepp, 1 fyrir Álftaness- og Hraunhrepp. Á
hinu fyrstnefnda svæði voru samkvæmt síðustu skýrslum
15 börn skólaskyld (10—14 ára), og 8 og 9 ára börn munu
hafa verið um 10. Þarna virðist því mega gera ráð fyrir
20—30 börnum, eftir því, hvort skólaskylda yrði færð nið-
ur í 8 ára aldur eða ekki, en um það hafa skólahéruðin at-
kvæðisrétt. Það væri mjög hægt starf fyrir einn kennara,
þar sem nú eru 2. Skólann væri sjálfsagt að reisa á heitum
stað, t. d. Laugarmel, sem liggur á krossgötum úr þessum
byggðarlögum.
Á því svæði, sem næsl var nefnt, munu vera um 50 börn
10—14 ára, en um 70, ef 8 og 9 ára böm eru talin með.
Héldist skólaskylda óbreytt frá því, sem nú er, mundi
auðvelt fyrir einn kennara að kenna við skólann, þar sem
nú eru þrír, með því að skipta börnunum í tvo flokka eftir
aldri. Væri skólaskylda færð niður, yrðu kennaramir að
vera tveir. Fyrir þennan skóla er um fáa staði að ræða,
þar sem jarðhiti er, og sjálfsagt virðist að velja Veggja-
laug, þar sem þar er þegar komin upp ágæt sundlaug, og
sá staður liggur auk þess bezt við samgöngum, af þeim,
sem jarðhita hafa. Til gamans skal ég geta þess um leið,
að ég álít, að einnig ætti að byggja sameiginlega kirkju