Svart á hvítu - 01.01.1980, Page 15
er leikið eftir eyranu er ekki þörf fyrir
nótnaskrift, sem hefur svo í för með
sér aö hver og einn leggur sitt að
mörkum til vinnslu efnisins).
3. rokk-tónlistin er lágt skrifuð í
menningarlegu og listrænu tilliti. Af
þessu leiðir að til hennar eru ekki
gerðar sömu kröfur og gerðar eru til
viðurkenndrar tónlistar, og því eru
rokk-hljómsveitir oft ófeimnari við
að notfæra sér efnivið og aðferðir
sem í hefðbundnum skilningi flokk-
ast ekki til tónlistar.
Vissulega gætir ólíkra viðhorfa til
tónlistarinnar hjá hljómsveitunum í
RIO, m.a. vegna ólíkra skilyrða sem
þær búa við hver í sínu landi. Stormy
Six telur t.d. Univers Zero of upp-
tekna af forminu á kostnað pólitísks
inntaks, en Univers Zero gagnrýnir
Stormy Six fyrir ofuráherslu á póli-
tíska boðun og þar af leiðandi van-
ræki þeir önnur svið listarinnar.
En gefum Chris Cutler lokaorðið:
,,Við gerum okkur Ijóst að rokk-
músikin er raunhæft og öflugt tæki
til að miðla gagnrýni og vonum. ,,Nú
er sá tími sem við elskum". Þú ert
hluti af þessum raunveruleika,
hvaða sveit sem þú skipar. . .
styrjöldin verður háð hvort sem þú
tekur afstöðu eða ekki. Þetta er að-
eins angi af þeirri baráttu um líf og
dauða sem skekur nú heiminn —
angi, sem útaf fyrir sig mun engu
breyta, en baráttuna verður að heyja
á öllum vígstöðvum, hversu smáar
sem þær eru — allt verður að draga
í efa, skoða, gera tilraunir með, öllu
verður að breyta — jafnvel hug-
myndunum um „ánægju" og
,,skemmtan“.“ □
Hljómplötulisti
STORMY SIX:
Un Biglietto Del Tram (L’Orchestra OLP 10001)
Cliche (L'Orchestra OLP 10010)
L'Apprendista (L’Orchestra OLP 10012)
La Macchina Maccheronica
ETRON FOU LeLOUBLAN:
Batelages (Gratte-Ciel CIEL 2.001)
Les Trois Fou's Perdegagnent (Au Pays Des . . .) (9h 17 Records 7001 /Tapioca TP
10020)
HENRY COW:
Hafa gefiö út fjölda platna, en sú síöasta var: Westem Culture (Broadcast Records Bc 1)
ZAMLA MAMMAZ MANNA:
Zamla Mammaz Manna (Silence SRS 4604)
Máltid (Silence SRS4621)
Klossa Knapitatet (Silence SRS 4627)
Snorungarnas Symfoni (Musik Nátet Waxholm MNW 70P)
För Áldre Nybegynnare/Schlagerns Mystik (Silence SRS 4640)
UNIVERS ZERO:
Univers Zero (Atem Records 7001)
ART BEARS:
Hopes and Fears (Re 21 88)
Winter Songs (Re Records Re 0681)
Þessar hljómplötur er hægt aö nálgast meö því aö skrifa til:
RIO
5 Silverthorne Road
London SW8
England
SVART Á HVITU
13