Svart á hvítu - 01.01.1980, Síða 18

Svart á hvítu - 01.01.1980, Síða 18
góðir áheyrendur hér rjúfum við dagskrána til að lesa kosningafrétt sem okkur var að berast fólk dansar á götum reykjavíkurborgar á hlemmtorgi er verið að brenna indverskt musteri kringum bálió þrammar opinber hersýning fremstir fara gjaldkerar neðanjarðarhagkerfisins væddir remúlaðidósum með sviðnum beinum ráóherrans sem brann á þingvöllum síóari hluta tuttugustu aldar næst gengur þungvopnuó deild úr sjóhernum með tréfætur látinna aðmírála reiddar við axlir og á höfði pappírshatta úr hinu forna herkvaðningarriti þjóðviljanum ungmenna&feröafélagió ml ber hitann og þungann af hersýningunni járnlíkneski af fallbyssunni lenín mannfjöldinn er klæddur eskimóaklæöum og veifar litlum myndum af bernhöftstorfunni og frá bálinu slær bjarma á sællega kinnfiska hins frumstæða manns í iðrum þvögunnar hefur varnarlið verkalýósins handtekið nokkra flugumenn frá afturhaldinu við aó dreifa ársriti norrænafélagsins: vi i norden þeir veróa dæmdir til ævilangrar þrælkunar sem mislukkuð skáld hjá pólitískum smásamtökum á austurvelli er vinnufælinn menntamaóur að flytja ávarp kranamannsins í rústum bastillunnar við aðalstræti er sungin hámessa forstöðumaóur oróabókar háskólans leggur út af ritningaroróunum ísland úr nató og herinn á brott nr 511 í gömlu sálmabókinni hátíóarhöldunum lýkur vió sólarupprás aó laugavegi 53a þarsem þjóðin mun fremja symbólskt sjálfsmorð til heiöurs hinum íslenska dauða 16 SVART Á HVÍTU

x

Svart á hvítu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.