Svart á hvítu - 01.01.1980, Qupperneq 20
Frá Fluxus tónlistarhátíð í Wiesbaden 1962. Frá vinstri Nam June Paik, George
Maciunas, á bakvið: Alison Knowles og Dick Higgins.
ég menntaður í ýmis konar list-
greinum; myndlist, bókmenntum,
leiklist, tónlist — ég stúderaði hjá
Cage og Henry Cowell. Segja má að
ég hafi verið n.k. tæknifræðingur
hópsins á þessum tíma. Emmett
Williams hafði eins og áður segir
bókmenntalegan bakgrunn. Hann
fékkst við „concrete" Ijóðagerð á 6.
áratugnum í samvinnu við listamenn
í Darmstadt í Þýskalandi. Þá vaknaði
áhugi hans á ,,inter media“ og þó
einkanlega Fluxus. Jackson Mac
Low hafði bæði fengist við tón-
list og Ijóðagerð. Þannig er bak-
grunnurinn margvíslegur, þó til-
gangurinn yrði í meginatriðum sá
sami, því verk þeirra allra endur-
spegluðu nýja vitund.
Hvað um Ben Vautier?
Ben Vautier slóst fyrst í hópinn á
Misfits hátíðinni í Lundúnum árið
1962, en hafði starfað í Nice um
nokkurra ára skeið. Hann fann upp
á ýmsum öfgaíullum uppátækjum,
eins og að raka annan helming
líkamans frá toppi til táar, og þá á ég
við allt hár á öllum stöðum. Hann
gerði líka verk, sem fólst í því, að
hann klifraði upp í tré og horfði á
áhorfendur frá greinum trésins.
Hann leit á sjálfan sig sem sína eigin
fyrirsætu og gerði sjálfan sig að
nokkurs konar listaverki. Þegar við
hittum hann í London hafði hann
fyrir sið að gleypa pillur nokkrar,
sem stuðluðu að þrálátum uppköst-
um. Þetta gætum við kallað n.k.
vasaútgáfu af gjörningi. Hann reif úr
gluggann á galleríi því sem
Lundúnahátíðin 1962 var haldin í og
sýndi sjálfan sig í honum í u.þ.b.
hálfa aðra viku, ef ég man rétt. Þeg-
ar hann frétti að við hefðum skipu-
lagt þessa gjörninga í Þýskalandi í
tengslum viö tímaritiö, vildi hann
óður og uppvægur slást í hópinn.
Hvernig tengdist Beuys ykkur?
Joseph Beuys kom inn í mynd-
ina, þegar hann skipulagði Dussel-
dorf hátíðina veturinn 1963, nokkr-
um mánuðum eftir að gjörningar
Fluxus tímaritsins áttu sér stað. Á
þessum tíma höfðum við ekki hug-
mynd um að hann hefði komið ná-
lægt gjörningum. Beuys er hins
vegar alls ekki dæmigerður Fluxus-
maður, því að í verkum hans er
vissulega um ,,útrás“ að ræða, og
þá í pólitískum tilgangi. Við höfðum
mikið álit á Beuys, en við litum
aldrei á hann sem hluta af okkar
hreyfingu. Staðreyndin er sú að við
litum aldrei á okkur sem hóp, fyrr en
eftir þá miklu útbreiðslustarfsemi,
sem átti sér stað í kjölfar atburðanna
1962. Áður höfðum viö litiö á okkur
sem einstaklinga sem komu saman í
þeim ákveðna tilgangi að flytja verk
okkar á þessum hátíðum.
Var eitthvað samband milli Flux-
ushópsins og situationistanna
frönsku?
Nei, það var ekkert beint sam-
band þar á milli, enda voru verk
þeirra gjörólík því sem við vorum að
fást við. Situationistarnir settu sér
það mark að hneyksla og skapa
glundroða. Þetta var ólíkt okkar
markmiðum og þó Paik hafi stund-
um unnið í þessum anda var það
undantekning í okkar hópi. Hann
kann að hafa valdið hneykslun á
einu sviði, en lokaniðurstaðan var
þó ætíð í Ijóðrænum anda.
Buðuð þið listamönnum formlega
að ganga í hreyfinguna?
Nei, yfirleitt buðu menn sér sjálfir,
þegar þeir komust að raun um það,
að þeir ættu samleið með okkur. Þó
eru undantekningar frá þessu, eins
og þegar Macunias bauð Japönun-
um.
Hvernig fjármögnuðuð þið starf-
semina og á hverju lifðuð þið?
Verkin sem við gerðum voru mjög
ódýr í framleiðslu. Við höfðum líka
öll aðra vinnu, sem við framfleyttum
okkur á. Ég hef líka tilhneigingu til
að líta svo á, að þannig eigi það aö
vera. Listamaðurinn er þá a.m.k. í
einhverju sambandi við almenning,
sem er ákaflega mikilvægt. Um leið
dregur þetta úr hættunni á stöðnun.
SYMPMONY ORCHESTRA CONDUCTEO BY KUNIHARU AKIYAMA
darncmcTlErital iiall mtt).5;st.
TICKETS S 2, NOW ON SALE AT CARNECIE HALL BOX OFFICE
OR CARNECIE RECITAL HALL BOX OFFICE BEFORE CONCERT
MO«H Mll>' 3i>UP|V(llTS (UUCTT •lU.IAUS COU*iTlliC SOHCS L»UO*T(
«IO«C C0U»0SITI0» THJUM* JAU(S HM(v Ch»UB(» UUSiC »«(LO0(
UO>U M(C»' Pi*»C PIÍCl l"t i »«0 OIHCTIO* SIUUIT»M(0US »(*>U*U»I|C(I
*tlSC» >W*l(S CHI10»»T *I(C( CVO*C» llC(T' T*OISB»C*T(LL(S V f TAu T»S
LA*osM«cis v(llow »KC( u*<hu »u«o »kc( «0 i j nj* co«coóu**tct
OK* MICCIIS CCi*ST(LL*T«j* «0 4 ro* 0*Ch(ST*» taichis* xosuci 0*c»mc
uusjc *oo(*t matts solo ro* ncncH ho*« oic« Hiccms uusic ro* st*incco
■ SnuUOTS J»U(STC**CV CKAUBC* UUSIC i*T(*LUOC »V0 *«i*B0<v >0* «1*0
0»CH( ST»* C(0*C( «*CCHT CONCCIT ro* 0*ChCSTIU »*0 SVUPHONV *0 i TOSHI
KMVAHACI *»<S JOC X)*(S U(CH»*IC»L 0»CHIST*» I0KIT WATTS CVÍNT M
OLNCTTI »001*0UAChinC i*UCUO*«U TO »0*1»HO OLTVCTTI CCORCC BRCCHT 1;
solos ro* stvincco imstruucnts joí **ís »i(C( ro» *i«oo«chcst»* *»u
JUW »»■ 0*( 10* VBJLI* SOLO CHICXO SHIOUl CALimC CVCNT j*UI , 'f NNf v
CHAMM* UUSIC »OSTLUO( »HILI» C0**C* 4TM n*AL( C B»CCHT M)»0 (Vf * •
18
SVART Á HVÍTU