Birtingur - 01.06.1962, Blaðsíða 31

Birtingur - 01.06.1962, Blaðsíða 31
ARNÓR HANNIBALSSON: ÞÆTTIR UM LIST í SOVÉT /. Valdimar Lenín um listir Majakofski Hinir miklu rússnesku rithöfundar 19. aldar komu heiminum á óvart. Rússneskar bókmennt- ir urðu í fyrsta sinn að þætti í heimsbökmenntun- um. Þær ruddust fram sem fljót í leysingum. Þær voru fyrsta tilraun rússnesks þjóðfélags til að gera sér grein fyrir eðlisrökum sínum, finna end- urlausn á óþolandi þjóðfélagsaðstæðum. Um aldamótin tóku symbólismi, fútúrismi og fleiri stefnur við af raunsærri ádeilu hinna miklu skáldsagnahöfunda. Úr þeim jarðvegi spruttu stórskáldin Blok, Ésénín, Majakofski, Vjatséslaf ívanoff, Brjúsoff, Pasternak og fleiri. Ritskoðun keisarans liafði verið hemill á allt bók- menntalíf í Rússlandi, þótt hún kæfði aldrei lífs- andann úr bókmenntunum. Þegar er byltingin réð niðurlögum hennar 1917 spruttu fram hinar margvíslegustu stefnur með nýju afli og þrótti. Hinir byltingarsinnuðu meðal listamanna vildu segja skilið við allt það, sem ort var og gert fyrir byltinguna og skapa nýja list á nýrri jörð, hreina öreigalist. Að þeirra áliti átti list að túlka andar- drátt framlciðslunnar beint (t. d. tónverk, sem líktu eftir gauragangi í verksmiðju) og skapa ný form, sem ekki voru til áður. Þessir listamenn færðu sér í nyt hugmyndir kúbista og express- ionista. Stefna þeirra hlaut nafnið próletkúlt. Hinar margvíslegustu stefnur fengu að starfa óhindrað og ikeppa sín á milli. Þannig var það meðan Lenín lifði. Valdimar Lenín, stofnandi hins sovézka ríkis- valds, hafði sínar skoðanir um listframleiðslu sem um framleiðslu annarra mannlegra gæða. Árið 1905 skrifaði hann grein, sem sovétingar vitna ætíð til, þegar rætt er um vandamál lista og bók- mennta. Lenín segir þar, að bókmenntir (þ. e. bæði fagurbókmenntir og blaðamennska, öll framleiðsla prentaðs máls) eigi að vera þáttur í flokiksstarfinu. Innan flokksins sé ekki hægt að þola andflokksleg sjónarmið. Hins vegar erum „við langt frá þeirri hugsun að boða eitthvert einhæft kerfi eða leysa vandamálið" (að gera bókmenntir að flokksstarfi) „með nokkrum til- skipunum" (Ritsafn, 10. bindi, bls. 28). „Um það verður ekki deilt, að á þessu sviði er óhjákvæmi- legt að tryggja mikið svigrúm fyrir persónulegt frumkvæði, persónulegar hneigðir, víðsýni hugs- unar og ímyndunarafls, fyrir form og innihald" (bls, 28). Lenín lýsir því' yfir, að fullt málfrelsi og prcntfrelsi skuli ríkja, en einnig félagafrelsi. Sé félagafrelsi viðurkennt, verði og að viðurkenna, að hvert félag hafi rétt til að krefjast af hverjum félagsmanni, að hann hlýði lögum og fyrirmælum félagsins. Lenin tekur það skýrt fram, að hug- myndir hans um flokksbókmenntir eigi alls ekki að gilda um allar bókmenntir í þjóðfélaginu: „Hér er um að ræða flokksbókmenntir og eftirlit flokksins með þeim. Sérhver er frjáls að skrifa og segja livað eina, sem honum þóknast án minnstu takmarkana." (Bls. 29). Lenín lætur 1 ljós vissu sína um það, að flokksbókmenntir verði einmitt frjálsar bókmenntir, þar sem þær muni skrifa menn, sem beri fyrir brjósti hag alþýðu og mál- BIRTINGUR 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.