Birtingur - 01.06.1962, Blaðsíða 64

Birtingur - 01.06.1962, Blaðsíða 64
JÓN FRÁ PÁLMHOLTI: YFIRHEYRSLAN i. Sólin skín. Það er söngur í loi'tinu. Bifreiðirnar renna mjúklega eftir götum borgarinnar. Gang- stígana troða fótgönguliðar hversdagsins, Sumir bognir og þúngstígir. Aðrir beinvaxnir og léttir. Hlæjandi meyjarandlit. Mjúklega vafinn trefill. Um að gera aðkoma sér áfram í þraunginni. Fram með olnbogana! Upp með hendurnar! Það er erfitt að vakna við svona hróp. Vera leiddur burt einsog fórnarlamb í miðjum þessum saung. Hvers vegna annars þessi saungur? Húsin, göturnar, trén, bifreiðirnar, hjólreiðamennirnir og hinir gang- léttu með fráhnepptar yfirhafnir. Af hverju endi- lega þessi saungur núna, þegar maður þarf að komast áfram, en er leiddur burt undir kjörorð- inu: Upp með hendurnar? Af hverju upp með hendurnar? Það þarf að binda hendur manna, segja yfirvöldin, og reyra raddbönd þeirra. Nú ríður á að menn tali ekki og aðhafist ekkert. A. m. k. ekkert, sem getur skaðað yfirvöldin. Nú ríður á að yfirvöldin haldi sínu. Nú er um að gera að ekki sé slakað á. Og sólin heldur áfram að skína. II. Hérna. segir brúnklæddur maður og bendir inní stóran sal. Þetta er stöðin. Hann hefur aldrei séð svona hátt til lofts í einu húsi. Uppi undir lofti hægra megin er pallur. Þar uppi tvístígur feitur maður í einkennisbúningj og hrópar hástöfum: Halló, halló, þú þarna niðri, halló. Lítill grann- holda maður kemur hlaupandi og hneigir sig ótt og títt, einsog trjágrein skekin aí vindi. Halló. segir stóri maðurinn á pallinum. Hífa, hífa glor- íuna. Halló, hífa gloríuna. Hífa gloríuna, segi ég. Upp með gloríuna! Halló, heyrirðu til mín, nú ríður á að hífa lagsmaður. Litli maðurinn snýst eins og vagnhjól og skekst eins og trjágrein. Hann hleypur. Hvaða gloríu? Hann tautar við sjálfan sig. Hvaða gloríu nú? Alltaf skulu þeir hífa. Hann tautar, en orð hans drukkna í hávaðanum. Engar spurningar hér. Það ískrar 1 blokkum og vindum. Þeir hífa. Sæti, segir sá brúnklæddi og bendir á ómálaðan trébekk. Sæti, gjörið þér svo vel. Stóri maðurinn heldur áfram að tvístíga, og sá litli hleypur og hneigir sig. Þeir hífa aftur. Svo opnast dyr. Gjör- ið þér svo vel, segir sá brúnklæddi. Gjörið svo vel, hérna. Þeir ganga inní annan sal engu minni. Nýtízku málverk á veggjum. Blóm í glugga. í þcssum sal eru engin húsgögn utan stórt skrif- borð í einu horninu og fyrir framan það stóll. Innan við skrifborðið situr feitur maður og skrif- ar. Andlit hans minnir á gamla rottu. Hann lítur upp þegar þeir koma inn. Gjörið þér svo vel, segir hann hásum rómi, sæti. Þá hefst yfirheyrsl- an. Fyrst eru nokkrar hefðbundnar spurningar: Nafn, heimilisfang, aldur, ætt og fæðingarstaður. Sá feiti ritar hvert orð af stakri vandvirkni í stór- an doðrant. Alltícinu lítur hann upp. Augnaráð hans minnir á skolbrúnan forarpoll. Af hverju er gat á Inixunum yðar? Hann hefur þá tekið eftir því bölvaður. Þetta gat á hnénu er búið að ángra hann lengi. þó hann hafj aldrei mannað 62 BIRTINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.