Ritmennt - 01.01.2001, Side 34

Ritmennt - 01.01.2001, Side 34
GUNNAR SVEINSSON RITMENNT átti sex börn með konu sinni, Þórunni Þor- leifsdóttur úr Stóru-Breiðuvílc, bæði fyrir og eftir hjónaband, og tvo syni með annarri konu, annan laungetinn og hinn hórgetinn að skráningarhætti í kirkjubókum þeirra tíma.10 Sigmundur hefur lýst afa sínum á þessa leið: „Richard Long var fulllcominn meðal- maður á hæð og gildleika og sterkur vel; frjálslegur í sjón að sjá, heldur döklcleitur; listaskrifari, ágætur smiður og erfiðismaður hinn mesti."11 Foreldrar - Matthías Richardsson Long og Jófríóur Jónsdóttir Þó að ógæfan hafi tíðum elt Richard Long á lífsbrautinni þá varð ævi næstyngsta sonar hans, Matthíasar (1813-82), nærfellt þrot- laus þrautaganga. Segja má um þá feðga í þrjá ættliði, Richard, Matthías og Sigmund, að þeir urðu hálfvegis utanveltu í samtíð sinni, hinu rótgróna bændasamfélagi 19. aldar þar sem ofar öllu rílctu kröfur um hús- bóndahollustu og vinnusemi og hjúin urðu að gerþekkja vinnubrögð öll inni sem úti. En feðgum þessum var ekki sýnt um bú- sýslu. Reyndar varð Richard bóndi um síðir og húsmaður undir lokin og Matthías einn- ig bóndi eitt ár og í húsmennsku um skeið þótt lengstum yrði hann að hrekjast vist úr vist og sveit úr sveit. Um fermingaraldur vorið 1827 fór hann að heiman sem vika- piltur og næstu 55 árin átti hann vist „á að minnsta lcosti 38 bæjum á Fljótsdalshéraði og í fjörðum, í alls 10 hreppum."12 Matthías tólc í arf kvensemi föður síns og bætti um stórum betur. Fyrst átti hann tvær dætur með sömu stúlku 1836 og 1838, en slcaut þar inn á milli syni með annarri stúlku 1837. Árið 1839 réðst hann í vist til séra Einars Hjörleifssonar á Dvergasteini við Seyðisfjörð og tolldi þar í þrjú ár til vors- ins 1842. Næst lcemur til sögunnar stúlkan Jófríöur Jónsdóttir. Hún fæddist árið 1816 á Glúnis- stöðum í Fljótsdal, yngst níu barna Jóns eldra Eirílcssonar og Guðbjargar Magnús- dóttur. Hún var á þriðja ári þegar móðir liennar andaðist og ólst meðal annars upp í slcjóli móðursystur sinnar og varð lolcs vinnulcona vorið 1834 hjá systur sinni og manni hennar á Breiðavaði í Eiðaþingliá, þá sautján ára að aldri. Jófríður fluttist síðan með systur sinni og mági að Dalhúsum í Eyvindarárdal, og þar lienti liana sú ógæfa um veturnætur 1838 að fæða dóttur sem mágur lrennar var faðir að. Vitaskuld varð Jófríður að fara í aðra vist vorið eftir og fór þá að Eiðum, en dóttirin andaðist um sumarið. Vorið 1840 urðu þáttaslcil í lífi Jófríðar. Þá fór lrún vistferlum að Staldcalilíð í Loð- mundarfirði. Þaðan er um þriggja stunda hefur ýmiss konar efni komið í ljós í blaðinu Heimskringlu 1889-1924 og öðrum blöðum og tímaritum. 10 Það verður að teljast harla óvenjulegt að þrír feðgar, mann fram af manni, Richard Long, Matthías Ric- hardsson og Sigmundur Matthíasson, áttu allir hver fyrir sig tvö börn í vændum samtímis. Sonur Ric- hards, Jón, fæddist í hjónabandi 16. júlí 1810 og launsonurinn Þórarinn 10. október sama ár. Sonur Matthíasar, Sölvi, fæddist í hjónabandi 1. janúar 1855 og launsonurinn Kristinn 3. maí sama ár. Laundóttir Sigmundar, Sigrún Anna, fæddist 3. október 1881 og hjónabandssonurinn Finnbogi 1. apríl 1882. 11 Heimskringla, 2. nóvember 1911. 12 Longætt II, bls. 635. 30
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.