Ritmennt - 01.01.2001, Side 127

Ritmennt - 01.01.2001, Side 127
RITMENNT UPPLÝ SINGIN ustu áratugum 19. aldar og öndverðri 20. öld en áður hafði verið. Misjafnt var, úr hvaða stéttum þeir voru, sem beittu sér fyrir stofnun lestrarfélaga; í sumum tilvilcum voru það menntamenn, í öðrum tilvikum var það alþýðufólk. Yfir- leitt fór þáttur alþýðufólks vaxandi að þessu leyti seint á tímabilinu. Kemur þar m.a. til athugunar stofnun bókasafna og lestrarfé- laga ungmennafélaga. Það er eftirtektarvert, hve mikið er fjallað um starfsemi lestrarfé- laga og mikilvægi fræðslu, sem fæst með lestri bóka, í handskrifuðum sveitarblöð- um.27 Eins og áður getur, slitnaði aldrei þráður- inn í útgáfu alþýðlegs fræðsluefnis meðal ís- lendinga á næstu áratugum eftir það tíma- bil, sem hefðbundið er að kalla upplýsingar- öld. Eftir 1870 kom verulegur fjörkippur í slíka útgáfu, þótt mörgum, sem tjáðu sig um þessi efni á næstu áratugum, t.d. Þor- valdi Thoroddsen, þætti engan veginn nóg að gert.28 Gefin voru út rit um ýmis efni. Útgáfa sérstakra rita um einstök efnissvið fór vaxandi, auk þess sem meira varð um það en áður, að ritgerðir, sem flokka má undir alþýðlegt fræðsluefni, væru birtar í tímaritum og blöðum. Samhengi er í út- gáfustarfseminni að því leyti, að milcið var gefið út um ákveðna efnisflokka, svo sem landbúnaðarmál og heilbrigðismál, er skip- að höfðu mikilvægan sess í útgáfu næstu kynslóða á undan. Þannig hélzt sú hefð, að helztu læknar landsins semdu fræðslurit um heilbrigðismál. Það er mikilvægt athugunarefni, hverjar voru meginforsendur aukinnar útgáfu fræðsluefnis, sem ætlað var almenningi, á síðustu áratugum 19. aldar og öndverðri 20. öld. Hér koma margir samverkandi þættir til álita. Yafalaust hefur það haft veruleg áhrif, að Alþingi fékk fjárveitingarvald og gat þannig stutt ýmiss konar menningar- starfsemi, þótt mikillar sparsemi væri gætt á landshöfðingjatímanum og ýmsum þættu framlög til margra málaflokka skorin við nögl. Þjóófélagsbreytingar á landshöfðingja- og heimastjórnartímanum ýttu svo undir frekari umsvif á sviði mennta- og menning- armála. Stuðningur við margs konar skóla- starfsemi hafði og mikið að segja; sú stað- reynd, að æ fleiri íslendingar höfðu notið ákveðinnar grunnmenntunar, lcallaði á aulcna eftirspurn eftir lestrarefni. Hér ber einnig að líta á aukna sérhæfingu í þjóðfé- laginu, margs konar félagsstarfsemi og vax- andi þéttbýlismyndun. Athyglisvert er það, sem greinir í formála fyrsta árgangs Tíma- rits Hins íslenzka bókmenntafélags, að fjár- stuðningur, sem Alþingi veitti félaginu, hafi verið forsenda þess, að ráðizt var í útgáfu tímaritsins. Merkilegt er líka það, sem þar segir um möguleika á útbreiðslu fræðslu- efnis,- tillcoma fleiri prentsmiðja og aukin útgáfa blaða og tímarita er rædd í því við- fangi.29 Fjölþættara þjóðfélag leiddi til þess, að fræðsluefni náði til fleiri sviða en áður hafði þekkzt. 27 Fjallað er um bókasöfn og lestrarfélög á því tíma- bili, sem tekið er til meðferðar í þessari grein, m.a. í eftirtöldum greinum: Ingibjörg Steinunn Sverris- dóttir: Lestrarfélög presta; Steingrímur Jónsson: Yf- irlit um þróun bókasafna á íslandi. 28 Þorvaldur Thoroddsen: Hugleiðingar urn aldamót- in, bls. 8. 29 Formáli, bls. 2. 123
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.