Ljósmæðrablaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 8
Stavfsmenntasj óöur
Nú er heldur betur kominn tími til að frétta af starfsmenntasjóðnum.
Frá þeim tíma sem liðinn er síðan ljósmæður tóku starfsmenntasjóðinn í sínar hendur, hafa margir kjarafé-
lagar sótt um og fengið styrki. Sýnir það best hvað félagskonur eru áhugasamar að viðhalda og auka við
menntun sína.
í byrjun voru mótaðar reglur, sem unnið er eftir og eru þær birtar hér fyrir aftan. Stjórn LMFÍ ákvað að
stjórn starfsmenntasjóðs ætti að vera launuð nefnd. f stjórn sitja f.h. launagreiðenda Guðlaug Björnsdóttir og
Grétar Guðmundsson, f.h. LMFÍ Ólafía Guðmundsdóttir og Sigurborg Kristinsdóttir.
Eins og kemur fram í reglum sjóðsins eru fastir fundir 4 sinnum á ári, í byrjun september, byrjun desember,
byrjun mars og byrjun júní. Þurfa umsóknir að hafa borist fyrir þann tíma. Ekki er unnt að afgreiða styrki
nema fullnægjandi frumrit af reikningi vegna kostnaðar liggi fyrir. í dag er hámarksstyrkur 20.000 kr. veittur
einungis til faglegs náms eða námskeiða.
Kjarafélagi á rétt á að sækja um á 2 ára fresti. Þeir sem ekki hafa áður fengið styrki ganga fyrir. Launa-
greiðendur kjarafélaga greiða 0,22% af föstum launum starsmanns í starfsmenntunarsjóð (sem er ca. 3690 kr
miðað við 100% starf í B2 2. þrepi).
Á aðalfundi LMFÍ í mars sl. var samþykkt að gefa upp nöfn þeirra sem styrki fá úr sjóðnum og birta í Ljós-
mæðrablaðinu.
Þeir sem styrk fengu í júní 1999 eru:
Guðrún Böðvarsdóttir
Sigríður B. Guðmundsdóttir
Ólafia Guðmundsdóttir
Guðrún Davíðsdóttir
Guðrún Eggertsdóttir
Jensína Nanna Eiríksdóttir
Sólveig Matthíasdóttir
Helga Ásmundsdóttir
Jónína Helgadóttir
Guðbjörg Jóhannesdóttir
Hulda Þórarinsdóttir
Þeir sem styrk fengu í september 1999 eru
Anna G. Ástþórsdóttir
Unnur Kristjánsdóttir
Guðrún Guðbjörnsdóttir
Björg Sigurðardóttir
Anna Rut Sverrisdóttir
Stai'fsreglur sjóðsstjómar Starfsmenntasjóðs L'KT'Í
1. Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum til skrifstofu Ljósmæðrafélags íslands, Hamra-
borg 1, 200 Kópavogi. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu LMFÍ
2. Úthlutað verður úr sjóðnum fjórum sinnum á ári. Umsóknir þurfa að berast sjóðsstjórn fyrir 1. mars, 1.
júní, 1. september og 1. desember. Stefnt er að afgreiðslu umsókna innan tveggja vikna frá lokum umsókn-
arfrests.
3. Umsækjendur skulu vanda frágang umsókna og tilgreina nákvæmlega til hvers þeir ætla að verja styrkfé
auk annarra atriða sem spurt er um á eyðublaðinu.
4. Sjóðsstjórnin setur reglur um hámarksstyrkfjárhæðir, sem nú nemur 20.000 krónum.
5. Greiðslur úr sjóðnum fara að jafnaði fram eftir að umsækjandi hefur gert grein fyrir kostnaði, t.d. með því
að leggja fram frumrit reikninga, vottorð um launalaust starfsleyfi frá stofnun o.s.frv.
&
ljósmæpr'ablapip