Byggingarlistin - 01.01.1951, Síða 16

Byggingarlistin - 01.01.1951, Síða 16
■BB Gunnlaugur Halldórsson: BúnaSarbankinn Innri hluti „almennings“, að neðan sjást spjald- skrárgeymslur í afgreiðsluborði. úr bronce, þakið er og klætt eirþynnum. Gluggar á skrifstofuhæðum eru af „per- spektiva" gerð, en smíðaðir hér á landi. 1 kjallara eru hólfageymslur viðskipta- manna, fjárhirslur og skj alageymslur bankans, eldhús og borðsalur starfs- manna, fatageymslur þeirra og snyrti- klefar. Þar eru einnig varavélar, lyftu- vélar o. fl. Þá eru í kjallara hitunartæki, en kerfið er að mestu leyti venjulegt vatnskerfi, en lofthitun í kjallara og 1. hæð. Kjaliaragólf er 2,80 m. neðar Austur- stræti, en 3,80 m neÖar Hafnarstræti og er neðsta gólf í Reykjavík til þessa. Mestu flóð ná allt að því upp í götubrún Austur- strætis. Hættan á því að byggingin „færi á flot“ hefði því verið yfirvofandi þang- að til steypu annarar hæðar var lokið, ef kjallarinn hefði ekki verið fylltur af vatni. Vegna hins mikla þrýstings varð gólf og veggir að vera samfellt, en frárennslis- kerfi allt ofar neðstu plötu, og þannig tæpum tveim metrum undir frárennslis- kerfi bæjarins í Austurstræti, en það er í 1 m dýpt. A kerfi hússins er því komið fyrir sjálfvirkri frárennslisdælu. Þessi ráðstöfun hefir aukið mjög notagildi kjallarans, gert kleift að koma þar fyrir eldhúsi, snyrtiklefum og öðrum salar- kynnum, þar sem hættunni af miklum flóðum var bægt frá, en ella hefði þurft að ætla þessu rúm annarsstaöar, þar sem meiri þörf var húsrýmisins. Á fyrstu hæð er afgreiðslusalurinn og bókhald bankans, en það skyldi standa í nánu sambandi við starfslið annarsveg- ar en viðskiptamenn hinsvegar, því þar fara fram ýmsar beinar afgreiðslur og annað fleira, er frábrugðið er öðrum bönkum. Stærð salarins var í upphafi á- kveðin með því að hann skyldi rúma 25 manna starfslið, auk 5 manns í bókhalds- deild, og var þá þegar ráðgert að taka upp vélfærslu á lausblaða spjaldskrá, en fram að þessu hafði allt veriö handfært í bækur. Allar aðalspjaldskrár eru innbyggðar í afgreiðsluborði, en þar er einnig komið

x

Byggingarlistin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.