Nýtt Helgafell - 01.10.1956, Side 11
HESKETH PEARSON
Leikstjórinn Bernard Shaw
í æsku sinni í Dýflinni og síðar á ung-
lingsárum í Lundúnum sá Bernard Shaw
síðustu leikara í fornum stíl á sviði: Ristori,
Salvini og Barry Sullivan. Athyglisgáfa
hans var næm, hann lifði sig inn í leikinn
af sömu ástundun og leikararnir sjálfir og
lærði af þessu fólki, hvernig flytja mætti
langar ræður og dramatísk atriði, án þess
að reyna um of á röddina eða þreytast.
Hann sá, hvermg þessum leikurum gat
tekizt upp, þó að þeir virtust ekkert reyna
á sig. Þeir liðu honum aldrei úr minni, og
þegar hann tók að semja leikrit, endurvakti
hann langar ræður eins og tíðkuðust í elztu
leiklist, ásamt persónugerð Shakespeare-
timans og tækni Euripidesar og Molieres.
En þegar hér var komið, höfðu Henry
Irving, Eleanore Duse og fleiri skapað hinn
latlausa nýtízku-leikstíl, en klassíski stíll-
mn þótti ekki framar eiga við. Því gerði
Shaw sér lítið fyrir, þegar farið var að sýna
leikrit hans, og kenndi leikurunum, sem
lært höfðu af náttúrustefnunni, að flytja
mál sitt með tilþrifum eins og áður gerðist.
Ég spurði einhverju sinni Sir Johnston For-
bes-Robertson, en handa honum samdi
Shaw Cæsar og Cleopötru, hvermg honum
'hefði þótt leikstjórn höfundanns. Hann
svaraði: ,,Shaw kunni allt, sem að leiklist
laut, á fingrum sér. Hann vissi meira en
við allir himr samankomnir. “
í fyrstu átti Shaw við ramman reip að
tÉaga. Leikararnir fundu engan botn í sam-
tölunum. ,,Er þetta fyndni?“ spurði einn
þeirra. ,,Látið þér áheyrendur um það“,
svaraði Shaw; ,,þér eigið að segja orðin eins
og þér meintuð þau, jafnvel þó þér vitið
ekkert, hvað þau merkja.“
Eitt af fyrstu leikritum hans ,,Hver
veit“ (You never can tell) var búið und-
ír Lundúnasýningu í Haymarketleikhúsi
1897. En leikfólkið vissi ekkert, hvernig
það átti að fara með verkið. Tveir leikar-
anna sögðu hlutverk sín ófær og skárust úr
leik. „Engin fyndni og engar góðar út-
göngusetningar“, sagði einn. Shaw sagði
mér frá öðrum aðalleikaranum, sem hafði
fatazt hvað eftir annað á réttum raddblæ
og rann í skap: ,,Komið þér sjálfur og seg-
íð það,“ sagð hann loks. Shaw fór um-
yrðalaust upp á sviðið og mælti fram setn-
inguna. Eftir það var leikarinn fúll. Shaw
Hesketh Pearson hefir samið ævisögur
Shakespeares, Disraelis, Sidneys Smiths,
Bernards Shaws, Oscars Wildes o. fl.
í sumar kom hann til Reykjavíkur í boði
félagsins Kynningar og flutti fyrir-
lestra um Shaw og Wilde. Fyrir tilmæli
Helgafells reit hann eftirfarandi grein
um kynni sín af Shaw sem leikstjóra og
leikhúsmanni. I ár er liðin öld frá fæð-
ingu Shaws.
wvJ