Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 80

Helgafell - 02.12.1943, Qupperneq 80
462 HELGAFELL skrifuð bók, full af ævintýrum farmennskunn- ar, og minna sumir kaflarnir á Marryat. Lýs- ingin á Oxford á síðari hluta 19. aldar hefur töluvert menningarsögulegt gildi, og í þeim kafla nýtur hin' góðlátlega brezka gamansemi sín bezt. StílJ höfundarins er blátt áfram og hressandi. Þýðingin er prýðilega af hendi leyst. Sverrir Kristjánsson. UDET FLUGKAPPI. Endurminningar sk.ráSar af honum sjálfum. Hersteinn Pálsson íslenzkaði. Utgef.: Isafoldav- prentsmiðja h. f. — Reykjavík 1943. Bókarkorn þetta hefur að geyma fremur sund- urlausar endurminningar þýzks flugmanns úr hinni fyrri heimsstyrjöld og frásögur um afrek hans og flugferðir á friðarárunum svokölluðu. Udet var einn af ungu kynslóðinni, sem þátt tók í heimsstyrjöldinni, einn af mörgum, sem „skildi ekki friðinn", eins og hann kemst að orði í bók sinni — og raunar ekki styrjöldina heldur. í augum þessara ungu manna — eink- um liðsforingja flugliðsins — var stríðið sport og djöfuls grín, eða grimmúðleg handiðn, sem ganga varð að eins og hverju öðru verki. Udct reynir þó alls ekki að fegra styrjöldina eða sveipa hana siðferðilegri ljómun og hetjubrag; hann játar hreinskilnislega, að sig hafi brostið kjark, er hann barðist í fyrsta skipti í lofti og Iætur andstæðinga sína njóta sannmælis. Hann varð samt einn frægasti flugmaður Þjóðverja í heimsstyrjöldinni, hlaut Pour-le-Merite orðuna. var flugmaður í hinni frægu flugvéladeild von Richthovens og þjónaði um stund Göring, er hann tók við stjórn hennar. Frásagnirnar um orustur hans í lofti eru fjörlegar og skrumlausar og skemmtilegar aflestrar. Síðari hluti bókar- innar, er lýsir flugstarfsemi hans eftir stríðið, er öllu svipminni, en gefur þó nokkra hugmynd um, hve erfitt hinum ungu borgarasonum Þýzka- lands veittist að festa rætur í þjóðfélagi, sem hætt var að lifa á mannvígum. Udet gerist flug- vélaframleiðandi í smáum stíl, ætlar að reyna að koma flugvélum sínum á framfæri í Suð- ur-Ameríku; en hinn bláeygi Aríi lendir í klón- um á ,,Grosbaum“ nokkrum, sem er sýnilega Gyðingur og er kominn_vei á veg með að pretta hann. En Udet gengur honum úr greipum, gefur honum ráðningu og allt endar eins og vera ber í viðskiptum Þjóðverja og ísraels- manna. — Bókin er Jiðlega þýdd. Sverrir Kristjánsson. Sagan um hernám Noregs MEN AN STÁR DOVRE. Roman av Christian Wessel. Till svenska af Nils Jacobsson. Hugo Gebers Förlag. Stock- holm 1943. Bók þessi er prentuð í Uppsölum í Svíþjóð á þessu ári. Mér er ókunnugt um höfundinn, en þykist þó vita, að hann sé Norðmaður, senni- lega ungur maður. Þetta mun vera fyrsta skáld- saga hans. Það kemur ekki til mála, að bókin hafi verið gefin út í Noregi, svo að þessi sænska þýðing er að líkindum fyrsta útgáfa. Saga þessi er mikill fengur öllum þeim, sem vilja setja sig inn ! sálarlíf norsku þjóðarinnar um það leyti, sem hernámið átti sér stað, og einnig síðan. Ymsir eru svo gerðir, að þeir eru fyrirfram tortryggnir gagnvart þeim bókum, sem þeir skoða að einhverju leyti sem áróðurs- rit, enda eru áróðurssögur oft bæði væmnar og ómannlegar. Hér er allt öðru máli að gegna. Frásögnin er fjörug og stuttorð, enda eru at- burðirnir þess eðlis, að hugur Jesandans fest- ir sig við þá. Ekki er Iaust við, að höfundur láti tilviljanir ráða rás atburðanna oftar cn góðu hófi gegnir, en honum fyrirgefst það, vegna þess að hann hefur lag á að hagnýta lesand- anum áhrif óvæntra atburða. Sumar lýsingarnar eru þrungnar óhugnaði og vekja nokkurn hryll- ing. En kímnigáfan er rík, og það er eins og höfundur missi sjaldan sjónar á því skoplega, jafnvel þó að það rigni eldi og eimyrju allt í kringum hann. Það er auðfundið, að hann hef- ur enga Iöngun til þess að dvelja við eða smjatta á því, sem er andstyggilegt eða grimmúðlegt í þeim tilgangi að kreista og kremja hjörtu les- endanna, en þarna er rakinn veruleikinn látinn tala. Flestum mun renna til rifja ástand gömlu Svan eftir yfirheyrslurnar hjá Þjóðverjunum, hvað þá ,,Drengsa“, áður en hann lætur líf sitt fyrir byssukjöftunum. En þó er það einn af meginkostum þessarar sögu, að hún lýsir venjulegu fólki með mannlegar tilfinningar. Við finnum mannshjörtu slá undir herklæðum Þjóð- verjans, engu síður en kufli Elíasar gamla á Bryggjunni. Orlög ungu húsfreyjunnar á Loft- um, stríðið, sem maður hennar þarf að heyja, vonir þeirra og vonbrigði, allt verður þetta minnisstætt lesandanum. Þó nær sagan líklega hámarki sínu í frásögninni um flóttann yfir til Svíþjóðar, ógnir og óhugnan þeirrar baráttu, sem háð er upp um norska dali, heiðar og fjöli. Skapgerðarlýsingar eru góðar og sumar með á- gætum. Ein af aðalpersónunum er Gyðinga-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.