Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 28
28 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 Það eru margir spámenn eftir á en það hefur all-taf verið erfitt að veðja rétt og stundum verða til dæmisögur sem þeir sem tóku ákvarðanir vilja gleyma. Nú eru Rolling Stones að halda upp á fimmtíu ára starfsafmæli og þegar þeir mættu í fyrsta sinn í hljóðver stakk upptökustjórinn upp á að reka Mick Jagger og fá sætari söngvara. Áður fyrr vantaði mörg tæki og tól á Íslandi og ekki hægt að nálgast þau með góðu móti og því leystu svokallaðir þúsund­ þjalasmiðir þetta á sinn hátt. Menn neyddust til að hugsa út fyrir kassann. Þessi sjálfsbjarg­ arviðleitni blundar ennþá með þjóðinni. Við erum hugmyndarík! Í dag er vinsælt að tala um nýsköpun og möguleika. Hlut- fallið er að það eru um 80% sem bara tala en einungis 20% sem eru að gera eitthvað. Reyndar þar sem ég hef komið nærri líta hlutirnir í raunveruleikanum al- drei eins vel út og í excel. Þetta er það sem verður að reikna með og má ekki valda vonbrigð­ um síðar meir. Stóra málið er hvernig er tekið á málum til að þróa hlutina áfram. Næst að byggja upp sam- stöðu í hópnum og tryggja fjármagn eða leysist allt upp í óeiningu um mismunandi leiðir og stjórnendur? Í haust hef ég verið að leita að fjármagni í nýsköpunarfyrir­ tæki og undirtektir verið undir væntingum. En hvernig get ég ætlast til að ná árangri með því að lofa t.d. hagnaði? Það eru komnir refsis- kattar á svoleiðis óhæfu og það er bannorð „að græða“! Enginn hvati, eins og t.d. skattafsláttur, fyrir fjárfestingar í nýsköpun. Ef þú gerir ekki neitt færðu bara 20% skatt á bankabókina. Það er ef til vill best fyrir þig, en ekki fyrir þjóðfélagið, framtíðina og börnin okkar sem munu erfa landið. Gamalt spakmæli segir: Ein kynslóð gróðursetur tré og næsta kynslóð hvílir í skugga þess. Örugglega ekki íslenskt spakmæli en merkingin er nokk­ uð skýr.“ Að veðja á réttan hest ÁRni ÞóR ÁRnason – stjórnarformaður oxymap ehf. FYRIRTÆKJA- REKSTUR Endalokin á annars góðum ferli gÍsli KRisTjÁnsson – blaðamaður STJÓRNUNAR- MOLI Hvaða mistök eru verst ef menn vilja endilega hrapa úr toppstöðu í atvinnu lífinu og enda á götunni? Þetta var nýverið kannað meðal á fimmta þúsund stjórnenda og stjórnunarfræð­ inga í Bandaríkj unum. Þetta fjallar um dýrkeypt mistök í fram- komu frekar en beinlínis rangar ákvarðanir í rekstrinum. Sumt má og annað ekki í daglegri umgengni. Margt af þessu eru óskráðar reglur sem gilda um flestar þjóðir og menningarhópa. Auðvitað get ur þó verið munur milli landa; í Frakklandi þykir til dæmis daður ekkert tiltökumál og það má blóta á skrifstofum útgerðarfyrirtækja en ekki á útfararstofum. Flest er þó líkt og það sem er ólíðandi fram­ koma í einu landi er það líka í öðru. Hvergi er vinsælt að hafa flissandi, skælandi, hrokafullan, fleðulegan og sjálfsánægðan stjóra. Hér er listi yfir tíu atriði sem allir ættu að forðast – ja, nema þeir vilji endilega fara í taugarnar á starfsfólkinu og ljúka ferlinum með skömm. Svörin byggjast á reynslu fólks sem hefur sinnt mannaráðningum í fyrirtækjum og stofnunum og rannsakað framkomu á vinnustað fræðilega. Þetta er listi yfir það sem ekki má. Lærum því af mistökum annarra. Það er þægilegra en að neyðast til að læra af eigin mistökum. 1. Kynþáttafordómar. Það geng ur ekki að stjórnandi hafi í frammi gildishlaðnar yfirlýsingar um kyn þætti og litarhátt fólks. Yfir 70 prósent aðspurðra nefndu þetta fyrst. Þetta gildir jafnt um karla og konur í stjórnunarstöðum. 2. Óviðeigandi brandarar. Það er neyðarlegt að hlusta á óviðeig­ andi brandara. Stjórnandi verður að hafa tilfinnngu fyrir hvað er viðeigandi og hvað ekki. Þetta er spurning um félags greind en ekki faglega þekkingu. 3. Grátur. Stjórnandi ætti ekki að gráta í augsýn undirmanna sinna. Í könnuninni sögðu 59 prósent að þetta ætti við um konur og 63 prósent um karla svo þarna er lítilsháttar kynjamunur. En grátur þykir merki um veik leika. 4. Heimska. Stjórnandi má aldrei opinbera heimsku sína! Ekki heldur gera sér upp heimsku. Sum um þykir það töff að látast ekki vita, tala um eigin vankunn áttu og segja „ég er nú svo vitlaus!“. Þetta er að mati aðspurðra ekki einkenni á góðum stjórnanda. Þetta er merki um hroka. 5. Blót. Það er ekki gott að blóta mikið. Bölv og ragn er talið merki um veikleika og vanstillingu en fyrir gesfst í undantekningar­ tilvikum. 6. Daður. Það er ekki algilt að daður á vinnustað þykir óvið eig­ andi en helmingur aðspurðra í kön- nuninni taldi þó að daður end aði oftast illa. Því væri ráðlegast fyrir stjórnendur að forðast daður. 7. Fitl. Margir nefndu að fitl með hluti eða jafnvel fötin sín og hár væri veikleikamerki. Fitlið fer í taug arnar á þeim sem verða að horfa upp á það. Og fitlið ýtir und­ ir grun um að stjórinn sé óstyrk ur og skorti sjálfsöryggi. Forðist því fitl. 8. Flóttalegt augnaráð. Yfirleitt er mælt með að starfsfólk mæti augnaráði stjórans og það er ekki talið gott ef stjórinn er flótta legur til augnanna og forðast að horfast í augu við fólkið. Aðspurðir voru þó ekki á einu máli um þetta. Það er ekki talin stórsynd að líta undan ef stjórnin er annars styrk. 9. Babl. Það kann ekki góðri lukku að stýra að tala óskýrt og sam- hengislaust. Stjórinn á að vera skýr í tali og boðskapur hans eða hennar auðskiljanlegur. 10. Fliss. Oftast eru konur sakaðar um að flissa mikið og fyrirgefst það stundum en fliss­ andi karlstjóri öðlast aldrei virð­ ingu. Það er talið veik leika merki að flissa og ekki gott, sérstakelga ef stjórnin er veik fyrir á fleiri sviðum. skoðun GEFÐU FRÍ UM JÓLIN JÓLAPAKKAR ICELANDAIR ÞAR SEM ALLT ER INNIFALIÐ* Evrópa frá 31.900 kr. eða 27.900 Vildarpunktar og 12.000 kr. *Innifalið: Flug, flugvallarskattar, sætisbókun án endurgjalds og ein taska að hámarki 23 kg. USA frá 54.900 kr. eða 47.900 Vildarpunktar og 22.000 kr. *Innifalið: Flug, flugvallarskattar, sætisbókun án endurgjalds og tvær töskur, að hámarki 23 kg hvor. Jólapakkatilboðið á þessu verði gildir til London Heathrow, London Gatwick, Manchester, Glasgow, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Oslóar, Amsterdam, Frankfurt, Munchen, París og Helsinki í Evrópu og til New York, Boston, Denver, Seattle og Toronto í Norður-Ameríku. Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 15. apríl 2013 (síðasti ferðadagur). Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign upp í fargjöld Icelandair. Skilmálar: Sölutímabil er frá 23. nóv. til 24. des. 2012 kl. 18.00. Bókunartímabil jólafargjalda er frá 20. des. 2012 til og með 11. jan. 2013. Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánar á icelandair.is. Þessar ferðir gefa 3.000-16.200 Vildarpunkta. Jólafargjöld eru ekki endilega í boði í hverju flugi og sætaframboð er takmarkað. + Kauptu jólapakka á www.icelandair.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.