Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 71

Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 71
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 71 HP Photosmart 5515 e-all-in-One Printer Fjölnotaprentari (29.900 kr. hjá www.okbeint.is og omnis.is). Prentarar eru ekki áhugaverðustu græjur í heimi en eru engu að síður mikil vægir. Og ótrúlegt en satt – það er hægt að gera þá smek klega og þægilega í notkun. HP Photosmart 5515 er stýrt með handhægum snerti skjá, hægt er að tengja tölvur við hann yfir þráðlaust net og hann lítur merkilega vel út af prentara að vera. Hann getur skannað og ljósritað, prentað báðum megin og prentað ljósmyndir. Þar að auki er verðið merkilega gott miðað við jafn vel heppnaðan fjölnotaprentara. Canon Powershot sX260 Hs Myndavél (59.900 kr. hjá www.netverslun.is). PowerShot SX 240 HS er létt og meðfærileg vasamyndavél sem tekur frábærar myndir og er að auki með ýmsa aukaeiginleika sem nýtast vel. Hún er með 20X aðdráttarlinsu og veitir góða stjórn á ljósopi og lokuhraða. Hún getur tekið átta kyrrmyndir á sekúndu í „burst mode“ og tekur Full­HD­háskerpu vídeó. Að auki er hún með gps­staðsetningartæki sem merkir inn staðsetningu hverrar myndar. samsung galaxy s iii Snjallsími (verð 109.900 hjá helstu símafyrirtækjum). Samsung varð á árinu stærsti símaframleiðandi í heimi. Það má ekki síst þakka velgengni flaggskips fyrirtækisins, Samsung Galaxy SIII, sem kom út síðasta vor. SIII býður upp á svo til allt sem hægt er að óska sér í fyrsta flokks snjallsíma: flottan skjá, gríðarlega öfluga vinnslu, góða myndavél og glæsilega hönnun ytra byrðis símans, sem fer vel í hendi þrátt fyrir að hann sé í stærra lagi. Það er ekki nema von að Galaxy SIII hafi verið eini síminn sem náði að velgja iPhone 4S undir uggum á þessu ári í vinsældum, en hann náði að vera mest seldi síminn á heimsvísu á þriðja ársfjórðungi (þegar Apple­aðdáendur biðu eftir nýjum iPhone). HP Z1 Borðtölva (frá u.þ.b. 450.000 kr. hjá www.okbeint.is). Flestar sambyggðar borðtölvur (e. all­in­one), þ.e. tölvur sem eru inn- byggðar í skjáinn, eru hannaðar með þægindi í huga en minna lagt upp úr afköstunum. HP Z1 er undantekning frá þeirri reglu. Hún kostar sitt, en gæðin eru líka augljós í samanburði við aðrar sambyggðar tölvur á markaðnum. Samkvæmt ítarlegum prófun­ um PC World stendur HP Z1 keppinaut unum framar á flestum sviðum. Hægt er að panta ýmsar útfærslur af vélinni eftir þörfum hvers og eins, en að auki getur maður sjálfur opnað tölvuna og skipt um íhluti – sem er ekki algengur eiginleiki sambyggðra tölva. sony alpha sLt-a57 Myndavél (149.990 kr. hjá www.netverslun.is). Þessi 16 megapixla mynda vél telst ekki SLR­myndavél samkvæmt skilgreiningunni. Hún slær hins vegar mörgum miðlungsdýrum SLR­myndavélum við á ýmsum sviðum. Hún getur t.d. tekið 12 myndir á sekúndu í átta mega pixla upplausn með sjálfvirkan fókus virkan, sem er hraðara en allar myndavélar í sama verðflokki (og reyndar meira en margar dýrari myndavélar geta stært sig af). Svo bætist við að myndavélin getur tekið 1080p vídeó með 60 römmum á sekúndu. Því er óhætt að fullyrða að með A57 fáist mikið fyrir peninginn. iPad Mini Spjaldtölva (verð 59.990 kr., t.d. hjá www.epli.is og omnis.is). Ein markverðasta nýjung Apple á árinu var Mini­útgáfan af hinni gríðarlega vinsælu iPad­spjaldtölvu. Hún kom með látum inn á markað sem Apple hafði ekki keppt á áður – smærri spjaldtölvur – og settist beint á toppinn. Hún er með 7,9 tommu skjá, er ein­ staklega flott og öflug og nýtur auk þess góðs af nær óendan­ lega miklu úrvali spjaldtölvuforrita í iTunes­verslun Apple. HP Photosmart 5515­prent­ arinn er með handhægum snertiskjá. Canon Power Shot SX260 HS er með ýmsa hentuga aukaeiginleika. Samsung Galaxy SIII er einn vinsælasti sími ársins á heimsvísu. HP Z1 er talsvert öflugri en hefð b und nar sam­ byggðar tölvur. SonyAlpha A57 hefur margt umfram keppinautana. ipad mini er smærri útgáfa af hinni feikivinsælu ipad­spjaldtölvu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.