Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 38
38 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 forsíðuefni hverf ast um Steingrím J. Sigfússon. Í upphafi kjörtímabilsins gætti hann ekki að því að tryggja stuðning alls þingflokksins við Icesave og þá hugmynd að þingmenn frekar en þingflokkar ríkis stjórn arinnar bæru ábyrgð á aðildarumsókn Íslands að Evrópu sam band inu. Ögmundur Jónasson hefur á bak við tjöldin verið sá sem einna mest hefur tekist á við Steingrím. Í nýafstöðnu prófkjöri var sótt að Ögmundi en honum tókst að tryggja sér stuðning meirihluta þeirra sem tóku þátt í prófkjörinu. Þátttakendur voru þó heldur fá mennur hópur eða um 450 manns. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem var ýtt til hliðar sem þingflokksformanni eftir barneignarfrí, gaf ekki kost á sér aftur. Liðsmönnum „órólegu deildarinnar“ innan þingflokks VG fer því fækkandi en það verður fróðlegt að sjá hver staða Jóns Bjarnasonar verður þegar flokksmenn velja listann í NV­ kjördæminu í janúar. Styrkur Steingríms innan VG er hins vegar mikill. Þrátt fyrir gífur­ lega gagnrýni á hann frá flokksmönnum VG heyrast engar radd ir opinberlega um að finna þurfi annan formann. Af því leyti er hann óumdeildur foringi í eigin flokki. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tryggði sér efsta sæt ið á framboðslista Framsóknarflokksins í NA­kjör­dæminu. Höskuldur Þórhallsson, sem skipar annað sæti listans, var ekki sáttur við að formaðurinn færi fram í kjördæminu enda hafði hann sjálfur hug á fyrsta sætinu.Norðausturkjördæmið er helsta vígi flokksins en sú staðreynd hefur þótt skýra hvers vegna formaðurinn sóttist eftir fyrsta sætinu þar en ekki eftir endurkjöri í Reykjavík. Sigur Sig­ mund ur Davíðs kom ekki á óvart. Bæði má nefna að flokksmenn í héraði ákváðu að fylgja frekar tillögu Sigmundar en Höskuldar um hvernig frambjóðendur yrðu valdir. Í annan stað má nefna að staða Sigmundar sem formanns virðist nokkuð sterk því hann fékk því sem næst rússneska kosningu þegar hann var endurkjörinn formaður síðast. En vel má vera að Höskuldur og stuðningsmenn hans eigi erfitt með að sætta sig við tap og því kann þetta mál að draga einhvern dilk á eftir sér. Þá er Siv Friðleifsdóttir að hverfa af þingi og því þarf að velja eftirmann hennar í Kraganum. Hún tók við forystusæti í kjör dæm ­ inu 1995 af Steingrími Hermannssyni, sem var formaður flokks ­ ins á undan Halldóri Ásgrímssyni. Það má velta fyrir sér hvers vegna Sigmundur Davíð valdi að fara fram fyrir norðan frekar en í Kraganum sem liggur nær hans heimahögum og hefur skilað flokkn um þingmönnum fram að þessu. Flutningur Sigmundar Davíðs norður þýddi einnig að fylla þurfti sæti hans í Reykjavík. „Hvað varðar möguleika Fram sóknarflokksins í næstu kosningum í samkeppninni um atkvæði miðjufólks þarf flokkurinn að komast frá próf­ kjörstíðinni tiltölulega heill og kappkosta að losa sig við spillingarstimpilinn sem enn vill loða við hann.“ FRAMSÓKNAR- FLOKKURINN Katrín Jakobsdóttir. Hún fer tæplega fram gegn Steingrími J. þrátt fyrir átök innan flokksins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hann er orðinn ótvíræður foringi Framsóknarflokksins eftir sigurinn fyrir norðan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.