Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 90

Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 90
90 FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 Borgar kringluna yfir, en það var lítil verslunarmiðstöð sunnan- megin við Kringluna. Síðar voru byggingarnar sameinaðar. Okkur leist vel á hugmyndina. Kvikmyndahús í verslunarkjörn­ um tíðkast víða erlendis og eru vel sótt. Það var ástæða til að ætla að kvikmyndahús í Kringlunni myndi njóta vin­ sælda. Þar voru næg ókeypis yfir byggð bílastæði og bygg­ ingin á mótum tveggja stærstu stofnæðanna í borginni. Hægt var að sameina innkaupaferð og bíóferð og kíkja jafnvel á veitingastað á eftir. Við slógum til og Kringlubíó var reist. Bíóið er þriggja sala, 1.250 fer metrar að stærð. Stærsti salurinn var með 400 sæti, annar salurinn með 200 sæti og þriðji með 130 sæti. Arkitektastofa Halldórs Guðmunds sonar sá um að teikna húsið. Sýningartjöldin voru höfð eins stór og mögulegt var miðað við stærð salanna og hallinn svo mikill að hver einasti gestur sá tjaldið í heild, jafnvel þótt gesturinn í sætinu fyrir fram an væri með pípuhatt. Sæt in voru sem fyrr af fullkomn ustu gerð, með hólfi fyrir gos og baki sem hallaðist aftur. Hljóðkerfið var stafrænt THX, en þá var staf­ rænn flutningur á hljóði að ryðja sér til rúms. THX gerir miklar kröfur til hönnunar sala og við fórum í einu og öllu eftir þeirra fyrirmælum og gott betur. Það skilaði sér í magn að asta hljóm­ burði sem ég hafði upplifað. Okkur var nokkur vandi á höndum við að gera anddyri bíósins nægilega áberandi og virðulegt. Það var leyst með áhrifamikilli geislalýsingu. Í for­ salnum var komið fyrir mynd- bandsvegg sem á voru sýndar stiklur og annað kynningar­ efni. Annan dag jóla 1996 var Kringlu bíó opnað með viðhöfn. Kringlubíó varð strax mjög vinsælt, ekki síst hjá eldheitum áhugamönnum um kvikmyndir. Það er alltaf góðs viti. Ragnar Trausti Ragnarsson kvikmynda­ áhugamaður segir til dæmis á vefsíðu sinni frá fyrstu ferð­ inni í Kringlubíó. „Þá var það flottasta bíóið í bænum. Það var virki lega töff og nýstárlegt. Allt dökkt í forgangi þar sem afgreiðsla er og ljóskastarar úti um allt. Maður fékk þá tilfinn­ ingu að maður væri á tökustað fyrir kvik mynd.“ Kringlubíó varð fimmta kvik- myndahúsið okkar. Samtals vor um við komin með þrettán sali með sætum fyrir vel á fjórða þús und manns og sýndum 400 sýningar á viku. Áratug eftir að Kringlubíó var opnað hélt stafræna myndbylt­ ingin innreið sína í Sambíóin. Kringlubíó var fyrsta bíóið á Íslandi með stafrænar sýningar­ vélar. Fljótlega eftir það tókum við í notkun tækni til að sýna myndir í þrívídd. Filmuvélunum var þó ekki skipt út eins og annars staðar. Við vildum hafa mögul eika á að sýna mynd ir af filmum, til að mynda á kvik­ mynda hátíðum. Leigusamning­ urinn sem við gerðum í Kringl­ unni var til fimmtán ára. Ég man að ég hugsaði með mér: „Þetta er aldeilis langur tími. Hvar verð ég eftir fimmtán ár?“ – Hviss, tíminn er liðinn. Fimmtán ár flugu hjá og ég varð þess varla var. Og nú erum við búin að skrifa undir nýjan leigusamning og erum að taka bíóið í gegn. Eftir breytingarnar verða allir salirnir sannkallaðir lúxussalir. Birgir Örn Einarsson arkitekt teiknaði nýja útlitið, en auk hans komu Ragnar Auðunn Birgisson og THG arkitekar að verkinu. Síðar meir er áætlað að stækka Kringluna yfir götuna og í húsið sem áður hýsti Morgun- blaðið og opna Kringlubíó þar. Hvar verðum við Guðný þá? Verðum við í bíórekstri? Mér verður þá óhjákvæmilega hugs­ að til manna eins og Ruperts Murdocks fjölmiðlakóngs sem er 85 ára, Summers Redstones, stærsta hluthafa í Viacom, móð ­ ur fyrirtæki Paramount, sem er 89 ára og Kirks Kerkorians sem á hálfa Las Vegas en hann er 25 árum eldri en ég, hálf tíræður. Þeir eru enn að og hvergi nærri hættir. Maður veit aldrei hvað úr verður. Hekluhópurinn. Í lok ársins 1989 var Verslunarbankinn sérlega órólegur yfir skuldastöðu Stöðvar 2 vegna þess að hann var að sameinast öðrum bönkum í Íslandsbanka 1. janúar 1990. Bankinn hafði því samband við nokkur fyrirtæki í því augnamiði að losa sig úr klípunni með því að selja þeim Stöð 2. Fyrirtækin voru Hekla, Hagkaup og Vífilfell. Skömmu síðar komu Bíóhöllin og Oddi inn í viðræðurnar. Áhugi var fyrir hendi og forráðamenn fyrirtækj­ anna funduðu reglulega í sex vikur og fóru yfir málin og gerði tilboð, en þegar á hólminn var komið var bankinn með móttilboð sem hópnum leist ekki vel á. Myndin er tekin þegar Hekluhópurinn fór í skemmtiferð til Feneyja og er verið að glugga í Frjálsa verslun. Fyrir aftan sófann eru Lýður Friðjónsson og Sigurður Gísli Pálmason. Í sófanum sitja Þorgeir Baldursson, Ingimundur Sigfússon og Árni Samúelsson. Eftir 30 ára farsælt samstarf við Disney var Árna afhent stytta af Walt Disney þar sem hann leiðir Mikka mús. Með honum á myndinni eru Jeff Forman (t.v.) og David Kornblum, yfirmenn alþjóðadeildar Disney. Myndin er tekin í september 2012. „Áratug eftir að Kringlubíó var opnað hélt staf­ ræna myndbylt ingin innreið sína í Sam­ bíóin.“ Ísland í aldanna rás 2001–2010 fjallar á líflegan hátt um atburði einhverra æsilegustu ára í sögu lands og þjóðar. Rifjaðu upp áratug öfganna! Ótæmandi brunnur fróðleiks og skemmtunar sem öll fjölskyldan sækir í – aftur og aftur. Áratugur öfga Bæt tu þessa R i gl æsilegu BÓk í sa f nið! www.forlagid.is Forlagsfréttir2012.indb 64 5.11.2012 12:32 bíókóngurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.