Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 39

Frjáls verslun - 01.09.2012, Blaðsíða 39
FRJÁLS VERSLUN 10. 2012 39 BÆTTU SMÁ DENVER Í LÍF ÞITT Verð frá 44.900 kr. Þessi ferð gefur frá 2.700 til 8.100 Vildarpunkta aðra leiðina. + Bókaðu núna á icelandair.is Að tillögu uppstillingarnefndar samþykkti kjördæmaþing í Reykja­ vík að Frosti Sigurjónsson færi fyrir öðru Reykjavíkur kjördæm inu en Vigdís Hauksdóttir leiddi áfram sitt kjördæmi. Mótfram boð Jónínu Benediktsdóttur gegn henni fékk hins vegar engar undirtektir. Hvað varðar möguleika Framsóknarflokksins í næstu kosningum í samkeppninni um atkvæði miðjufólks þarf flokkurinn að komast frá prófkjörstíðinni tiltölulega heill og kappkosta að losa sig við spillingarstimpilinn sem enn vill loða við hann. flokkurinn stendur tæpt í könnunum Kannanir sýna að Framsóknarflokkurinn stendur tæpt en ég tel að hann eigi sóknarmöguleika. Í ljósi þess að andstæðingum ESB­að­ ildar hefur vaxið fiskur um hrygg innan flokksins liggja tækifærin einkum í því að fá fylgi frá vonsviknum kjósendum VG og Sjálfstæðisflokksins. Þetta kallar á miðjustefnu sem hefur skírskotun bæði til vinstri og hægri. Í framkvæmd getur það þó reynst erfitt. Á kjörtímabilinu hefur flokknum ekki tekist að finna þessa fínu línu. Þess í stað hefur þingflokkurinn iðulega virst klofinn í hægri og vinstri arm þar sem formaðurinn fer augljóslega fyrir hægri arminum. Þetta ruglar kjósendur í ríminu og er m.a. skýringin á því hvers vegna Framsóknarflokknum hefur ekki tekist að gera sér mat úr miklum óvinsældum ríkisstjórnarflokkanna. Sem miðjuframboð keppir Framsóknarflokkurinn líka við Bjarta framtíð sem er nýtt og óreynt framboð og hlynnt ESB­aðild. Þar fara þingmennirnir Guðmundur Steingrímsson og Róbert Marshall fremstir í flokki. Framboðið beið með að kynna sína frambjóðendur þar til framboðslistar keppinautanna lægju fyrir. Líklegt er að fólk sem hefur tengsl við Samfylkinguna og Besta flokkinn verði áberandi á lista Bjartrar framtíðar og jafnvel einhverjir sem hafa látið til sín taka í bloggskrifum. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort Jón Gnarr borgarstjóri fer yfir í landsmálapólitíkina. Af skoðanakönnunum má draga þá ályktun að Björt framtíð sæki fylgi sitt einkum til óánægðra samfylkingarmanna. En fylgi Sam­ fylkingarinnar er einmitt niðri um svipað hlutfall og fylgi Bjartrar framtíðar mælist nú. Mál verða að skýrast betur varðandi uppstillingar á öðrum listum til að hægt sé að átta sig betur á þeim og hvaða möguleika þeir hafa. Tíminn er fljótur að líða og það er tiltölulega stutt til kosninga. Það er hlaupinn kosningaskjálfti í frambjóðendur og spennan mun magnast til muna á nýju ári. Það virðist útrætt af hálfu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að hún ætli ekki gegn Bjarna í formennskuna; hún hefur sjálf slegið það út af borðinu. Margir virðast samt eiga erfitt með að trúa því að það mál sé búið og frágengið. Úrslitin í Samfylkingunni á milli Árna Páls og Guðbjarts um hvor leiði flokk inn geta líka reynst afdrifarík varðandi líklega samstarfsflokka eftir kosningar. Stóru málin í kosningunum verða örugglega efna­ hagsmálin og aðildin að Evrópusambandinu – og hvort nú verandi ríkisstjórnarflokkar vinni áfram saman með stuðningi fleiri flokka. Það kraumar undir. „Líklegt er að fólk sem hefur tengsl við Samfylkinguna og Besta flokkinn verði áber­ andi á lista Bjartrar fram tíð­ ar og jafnvel einhverjir sem hafa látið til sín taka í blogg­ skrifum.“ BJÖRT FRAMTÍÐ Frosti Sigurjónsson leiðir lista framsóknarmanna í Reykjavík. Margir telja að hann sé happafengur og dragi til sín mikið fylgi í komandi kosningabaráttu. Núna er að sjá hvað skoðanakannanir segja. Guðmundur Steingrímsson. Kemst hann inn á þing? Jón Gnarr. Fer hann í landsmálapóli­ tíkina fyrir Bjarta framtíð?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.