Bæjarins besta - 12.12.2013, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2013
Sælkerar vikunnar eru Hrund Sæmundsdóttir og Ólafur S. Kristjánsson á Ísafirði
Kjúklingabringur í sinnepssósu
Ég ætla að bjóða upp á ein-
falda og góðan kjúklingarétt og
dýrindis desertskál sem svíkur
engan. Njótið.
Kjúklingabringur í
sinnepssósu (fyrir 4)
2 msk ólífuolía
4 kjúklingabringur
250 gr. sveppir, sneiddir
2 skallottulaukar, fínsaxaðir
2 hvítlauksrif, marin
3,5 dl vatn
1 teningur kjúklingakraftur
1.5 dl rjómi
2 msk Dijon sinnep
1 1/2 tsk Estragon, þurrkað
Salt og pipar
Hitið ein msk af ólífuolíu á
pönnu og steikið bringurnar við
meðalhita þar til þær hafa brúnast
í 4-5 mínútur á hvorri hlið. Setjið
þær síðan til hliðar. Ein matskeið
af olíu sett á pönnuna og svepp-
irnir steiktir þar til þeir hafa brún-
ast. Þá er skallottulauknum og
hvítlauknum bætt út í og þeir
steiktir saman. Vatni og kjúkl-
ingakrafti hellt út í. Þegar suðan
kemur upp er hitinn undir pönn-
unni lækkaður og rjóma bætt við.
Suðunni er leyft að koma hægt
upp og látið malla þar til vökvinn
hefur soðið niður um helming.
Estragonog sinnepi bætt saman
við, smakkað til með salti og
pipar. Kjúklingabringurnar látnar
út í pönnuna og látið malla í
sósunni í 4-5 mínútur. Borið fram
með salati og hrísgrjónum. Í
eftirrétt er desertskál sem er alltaf
vinsæl
Dýrindis desertskál
½ líter rjómi
1 dós perur
1 stk Rís-marengsbotn
3 stk snickers
Jarðaber
Nóakropp
Marengsbotn mulin, perur
stappaðar og Snickers brytjað,
öllu blandað saman í skál. Rjóm-
inn þeyttur og blandaður saman
við. Skálin sett í frysti. Tekin út
c.a einum tíma áður en hún verður
borin fram. Skreytt með jarða-
berjum og Nóakroppi.
Við skorum á Lindu Mar-
gréti Sigurðardóttur og Andra
Rafn að vera næstu sælkerar.
Elín Sveinsdóttir
frá Ísafirði leggur
stund á nám í
leiklist við Lista-
háskólann í Wor-
cester. Hún á eitt
ár eftir af þremur.
Heima
að heiman
Minn miðbær...
Eftir tuttugu mínútna göngu frá húsinu mínu og yfir ána er
miðbærinn minn. Hérna er hægt að finna allt mögulegt. Til
dæmis hina víðfrægu fatabúð Primark á tveimur hæðum
ásamt fleirum góðum. Á góðum degi er ekkert betra en að
rölta í bæinn með vinkonunum, kíkja í búðir, út að borða, í
bíó - já eða út á lífið. Regnhlífin er oft á lofti hins vegar þar
sem að rigningin lætur oft sjá sig á veturna í Englandi.
Minn Edinborgarsalur...
Skólinn minn er mjög heppilega í göngufjarlægð frá göt-
unni sem ég bý við, svo nálægt að ég get rúllað mér fram
úr rúminu, burstað tennur og verið mætt á innan við tíu mín-
útum. Hérna má sjá stúdíóið í skólanum mínum þar sem flest
allar kennslustundirnar, leikæfingar og sýningar fara fram.
Þarna inni hef ég eytt ansi mörgum strembnum klukkutímum
við æfingar fyrir ýmis verkefni, verkleg próf á sviði og fleira til.
Minn bumbuhringur...
Það tekur mig um tíu mínútur að komast í bumbuhringinn
minn í Englandi. Ef að ekki rignir og ég er í stuði á ég til að
skottast niður á veðhlaupabraut og skokka hringinn rétt
eins og hross. Skokkið tekur mig um það bil klukkutíma og
getur verið ansi hressandi bæting við daginn. Þarna með-
fram er stór og mikil á og mörg tré - þannig ekki skemmir
útsýnið fyrir í brokkinu.
Mitt Gamla sjúkrahús (bæjarbókasafnið)...
Mörgum Worcester-búum til mikillar undrunar var þessari
gullnu byggingu skellt innan um múrsteina-þemað í mið-
bænum. Þetta er mitt bæjar- og skólabókasafn. Það getur
verið ansi strembið að finna bækur sem maður leitar að
enda bókasafnið sjálft ansi stórt. Einnig hefur verið sett upp
aðstaða fyrir nemendur í leiklist til að undirbúa sín verk og
annað. Þess má til gamans geta að áður fyrr stóð þarna
bygging sem að var sjúkrahús á seinni heimstyrjöldinni.
Þannig í raun get ég kallað þetta Gamla sjúkrahúsið, rétt
eins og heima.
Mitt Sundstræti...
Eins og margir vita er múrsteinninn ansi vinsæll í Englandi.
Hérna má sjá götuna sem að ég bý í, Oldbury Road. Við
leigjum saman fimm stelpur þannig að það er alltaf fjör á
okkur. Hérna hafa verið ófáar leikæfingarnar í bakgarðinum.