Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Blaðsíða 82

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Blaðsíða 82
Tímarit Máls og menningar I rauninni má segja að þau séu fulltrúar andstæðra tilhneiginga sem svo mjög einkenna manninn og mannlífið á öllum tímum. Annars vegar er þörfin til þess að skapa sér fastan stað í tilverunni, t. d. fjölskyldu, hins vegar er ævintýraþráin, þörfin fyrir að reyna stöðugt eitthvað nýtt. Steinunn kveður upp þann dóm yfir Alfi að hann hafi í raun og veru aldrei lifað. Hann hafi dvalið í draumum sínum og allar hans tilfinningar þar af leiðandi verið.ímyndaðar. Sannleikur þessara orða birtist okkur m. a. í því að Alfur hefur ekkert elst í útliti milli burtfarar og heimkomu þó gera megi ráð fyrir að tugir ára hafi liðið. Munurinn á lífi Alfs og Steinunnar er í stuttu máli sá að hann hefur lagt í rústir en hún byggt úr rústum. Og þegar Alfi er orðið þetta ljóst verður lífið honum óbærilegt. Hann ber í sér mein sín og þeim er ekki hægt að eyða. Hann getur ekki lifað en þorir ekki heldur að deyja. IV Lokakaflinn, sem felur í sér endurlausn Alfs, rambar hvað mest á mörkum draums og veruleika. Leið Alfs liggur í ríki gleymskugyðjunnar Heljar og þar kveður hann upp harðan dóm yfir lífi sínu: Ég hef leitað að einhverju til þess að leita að. Ég hef leitað að friði, fundið baráttu, elskað baráttuna, af því að hún sló bjarma á vonina um frið. Ég hef fórnað augnablikunum fyrir eitthvað, sem ég aldrei fann, og hefði heldur ekki verið nema augnablik, ef ég hefði fundið það. Ég hef leitað að sjálfum mér og týnt sjálfum mér. (151) Jafnóðum fjarlægist hann sjálfan sig. Sál hans hefur sundrast við það að reyna alla þá möguleika sem lífið og frelsi þess býður upp á. Kjarni málsins er sá að raunverulegt líf er ekki fólgið í því að þamba sig fullan af lífsreynslu. Slíkt hefur enga þýðingu þegar hinn innri maður þróast ekki með. Alfur hefur leitað langt yfir skammt að tilgangi lífsins. Menn verða að leita hans í sjálfum sér. Eina von Álfs um endurlausn er fólgin í því að hann sé sviptur minninu — látinn gleyma fortíðinni. Aðeins þannig getur hann vænst þess að finna hamingju og frið. Þessa endurlausn lætur Hel honum í té og er hún í senn umbun og refsing, því við það verður hann framandi sjálfum sér, glatar sjálfsmynd sinni og byrjar upp á nýtt eins og barn. Afturhvarf Álfs til hins einfalda sveitalífs var þannig einungis blekking. Slíkt er ekki valkostur nútímamannsins sem komist hefur í kynni við taktslátt tímans. Hæfileikinn til einfalds og heiðarlegs lífernis er glataður. 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.