Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Blaðsíða 126

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Blaðsíða 126
Tímarit Mdls og menningar endurtekningar og með óræðni og skír- skotunum í ýmsar áttir vekur hann les- andann til stöðugrar umhugsunar. Hann er gamansamur og stríðinn og gerir óspart grín að því sem honum dettur í hug, t. d. uppeldisaðferðum: Mig langar líka að verða læknir þegar ég er orðin stór, sagði Tóta litla ákveðin meðan þau skoðuðu skjalið. Vertu þá dugleg að drekka mjólk- ina þína, sagði mamma hennar. En rnundu að þamba ekki. Þá verðurðu aldrei læknir ef þú þambar. /. . ./ Já, það er hverju orði sannara, sagði læknirinn. Ef þú þambar og borðar hratt, þá verðurðu ekki læknir heldur þarftu á lækni að halda. Það er tvennt ólíkt. (bls. 33) Hugmyndaflug Guðbergs virðist ótakmarkað, frjálst og óbeislað af viðj- um vanans og yfirborðs siðgæðisins þannig að hann er höfundur sem þorir og sem okkar bráðvantar á barnabóka- markaðinn. En til að öðlast vinsældir og almenna viðurkenningu verður hann að halda sér á mottunni að minnsta kosti með aðra löppina. Hildnr Hermóðsdóttir VAR ÞAÐ EKKERT SÁRT? Punktur punktur komma strik (1976) þótti viðburður í íslensku bókmenntalífi á sínum tíma. Einkum vakti stíll verks- ins aðdáun: Ijóðrænn og leiftrandi hug- kvæmur, auðnuminn og glaðbcittur. Með þessari bók haslaði Pétur Gunnars- son sér völl sem persónulegur og sér- stæður höfundur í íslenskum bók- menntum. Þá stöðu hefur hann heldur styrkt með Eg um mig frd mér til mín (1978) og nú síðast Persónum og leik- endum (1982) Sumum nútímarithöfundum svipar allmjög til hins kaldhæðna trúðs: hlátur þeirra og skop blendin, viðurstyggðin eða harmurinn skammt undan. Heimur Péturs Gunnarssonar kjarnast hinsvegar í græskulausum hlátri, glettnin virðist viðbragð hans við veruleikanum. I verk- um hans ríkir galsafengin kæti í stíl- legum uppákomum, orðaleikjum og skoplegu líkingamáli. Pétur varð sjálfur að manni um iíkt leyti og söguhetja hans Andri og ber þess augljós merki. Lífsskoðun hans er greinilega mótuð af umróti 7unda ára- tugarins: blómafári og stúdentaupp- reisn. Á sína vísu tjá verk hans andrúms- loft þessara ára, einkum leikinn og lífs- þorstann, andófið og drauminn um ný- sköpun mannlífs og samfélags. Hin nei- kvæðu teikn tímans koma hinsvegar lítt fram í skáldskap hans: lífsháskinn, ógn- in og uppgjöfin, martröðin — sem þó fólust í tíðarandanum sem ástæða og möguleiki. I sögum sínum dregur Pétur upp mynd af lífinu sem gamanleik; ver- öld hans er auðrakin og saklaus þegar allt kemur til alls. Frá upphafi hefur Pétur haft nokkra sérstöðu í hópi „ungu höfundanna" sem á 8unda áratuginum hurfu frá módern- ískri nýsköpun til realískrar skýrslu- gerðar um innanmein borgaralegs þjóð- félags. Hann fylgir svipaðri hugmynda- tísku og þeir en útmálar hana á annan hátt. Pétur stendur að ýmsu leyti nær ljóði en epískri frásögn og skynjar líkast ljóðskáldi andstætt höfundum á borð v 116
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.