Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 13

Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 13
 sk‡ 13 Kristján Jóhannsson „Það að verða óperusöngvari og að vera óperusöngvari er vinna alla daga og tekur í raun engan endi því maður verður aldrei ánægður sjálfur.“ að vera óperusöngvari er vinna alla daga og tekur í raun engan endi því maður verður aldrei ánægður sjálfur. Þú ert af söngfólki kominn á Akureyri. Hvernig hvatti faðir þinn þig til dáða í söngnum? - Hann náði sem betur fer að hlusta á mig nokkrum sinnum, meðal annars í tveimur óperuhúsum erlendis. Í seinna skiptið var ég að syngja í Glasgow en hann andaðist í byrjun heimferðar sinnar frá mér þá. Annars hvatti hann pabbi mig áfram með tárum sínum þegar honum fannst ég syngja vel og leyndi ekki ánægju sinni þegar ég naut velgengni. Hvenær steigst þú fyrst á svið og söngst fyrir áhorf- endur? - Það var með pabba gamla á Akureyri þegar ég var átta ára gam- all. Hann var kallaður Jói Konn (Jóhann Konráðsson). Þetta var á annan í jólum og við sungum saman og hvor í sínu lagi, bæði jólalög og sálma, og vorum með tvo harmonikkuleikara með okkur. Ég man að ég söng Heims um ból aleinn og það var mikill skjálfti í mér þá stundina. Það má segja að ég hafi verið sísyngjandi upp frá þeirri stundu og ég fór í kór Barnaskóla Akureyrar hjá Birgi Helgasyni en þar var mikið sungið og glatt á hjalla. Um 12-13 ára aldurinn datt botninn úr söngáhuganum hjá mér en ég hélt síðan áfram þar sem frá var horfið um tvítugt og er ekkert á leiðinni að hætta. Þú ert sagður mikill bílaáhugamaður. Hvaða bíl hefur þú haldið mest upp á í gegnum tíðina? - Uppáhaldsbíllinn minn er Mercedes Benz CL600 en ég átti þann bíl óvenjulengi. Annars kann ég mjög vel við núverandi bílinn minn, Range Rover, en hann tekur ekki sess Benzins þótt hann sé góður. Ég fylgist með bílaíþróttum og talsvert með Formúlunni. Ég hef farið á bílasýningar í Genf og Zürich og á Grand Show í Bologna sem er á hverju hausti. Ég fylgist með nýjungum og nýjum bílum. Þar sem ég er núna að mennta börnin mín hugsa ég minna um að kaupa mér bíla en áhugann vantar ekki. Þú dáir auðvitað ítalska matargerð og ert sagður mikill matgæðingur. Hver er þinn uppáhaldsréttur og þitt uppáhaldsrauðvín? - Það er án efa skelfiskpasta og helst ef ég geri það sjálfur. Ég elda jafnt á við konuna mína og mjög gjarnan þegar vinir og kunningjar koma í heimsókn. Það hefur róandi áhrif á mig og mér líður vel þegar ég elda. Ég er óhræddur að prófa ný hráefni og reyna við nýja rétti og geri því sjaldan sama réttinn tvisvar. Ég leik mér gjarnan með krydd og að smakka mig áfram en ég lít aldrei í mataruppskrift- arbók. Ég var í matreiðslu í gagganum á Akureyri á sínum tíma og þar fékk maður grunninn, lærði um hluti sem skildu sig og skildu sig ekki en þar tel ég mig hafa hlotið þann lágmarksgrunn sem ég bý enn að. Ég nota lítið smjör og sjaldan rjóma en þess meira af góðum olíum og mikið af hvítvíni og rauðvíni. Hafa ber í huga að maturinn er aldrei betri en hráefnið og gæðin sem maður notar í hann. Uppi á Íslandi nær matarást mín til kvenfólksins í fjölskyldunni en þær, þessar elskur, elda alltaf og bjóða mér í fiskibollur þegar ég kem heim en góðar fiskibollur og glæný steikt ýsa slá flestu við. Já, uppáhaldsrauðvínið mitt! Hér er mikið af úrvalsvínum og ég fer gjarnan og kaupi beint frá vínframleiðendunum. Mér finnst gaman að smakka ný vín, þannig að ég reyni að versla sem víðast. Ef ég ætla að dekra við mig fæ ég mér kannski gott Amarone eða góðan Pino Nero með nautasteikinni en það eru hvorttveggja góð vín, þar sem gæði og verð fara saman. Þú segist vera að mennta börnin þín núna, hvað nema þau og hvað gerið þið fölskyldan saman í frístundum? - Ég á tvo syni og eina dóttur með Sigurjónu sem búa hér á Ítalíu. Sverrir er 20 ára og lærir sviðslistir í Listaháskóla í Brescia. Vík- ingur er 18 ára og er í menntaskóla á listabraut en Rannveig er níu ára og er í barnaskóla. Ekkert barna minna hefur enn farið í sönginn en það eru ekki öll kurl komin til grafar! Þegar við eigum frí reynum við að skreppa á skíði yfir veturinn en á sumrin finnst okkur gaman að leika okkur á vatninu á bátnum okkar. Ekki er heldur amalegt að fara í veiði eða sumarbústað heima á Fróni en við erum mjög hefðbundin, myndi ég segja. Með „mömmu“, Fanney Oddgeirsdóttir, eftir debutt á Englandi í Dorsett, þar sem hann söng Don Carlo í sam- nefndri óperu Verdis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.