Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 40

Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 40
 40 sk‡ var ódrukkin þegar hinir siðavöndu rafvirkjar gripu til þessa óynd- isúrræðis og tók þetta ákaflega nærri sér. Af frásögn Friðriku er ljóst að fljótlega eftir tvítugt missir Ásta stjórn á áfengisneyslu sinni og hrekst eins og rekald um götur Reykjavíkur milli misjafnlega vafasamra samkvæma. Hún reynir inn á milli að stunda vinnu og heldur einhvers konar heimili í bragg- anum en það endist ekki lengi. Hún leitaði sér einu sinni hjálpar á þessum árum þegar hún fór til sálfræðings og í framhaldi af því í afvötnun á heimili Bláa Bandsins við Flókagötu en útskrifaði sig sjálf þaðan. Þáttaskil urðu í lífi Ástu þegar hún kynntist Þorsteini skáldi frá Hamri og hóf sambúð með honum árið 1957. Þorsteinn var aðeins 19 ára þegar samband þeirra hófst, átta árum yngri en Ásta. Þau bjuggu í risíbúð á Nesvegi og eignuðust þrjú börn á þremur árum og Ásta hélt sig meira að skriftum og myndlist en oft áður. Þau eign- uðust síðan hús í Kópavogi og árið 1961 kom út smásagnasafn Ástu sem hét eftir frægustu sögunni, Sunnudagskvöld til mánudagsmorg- uns. Það innihélt allar sögur hennar sem áður höfðu birst og tvær nýjar að auki. Viðtökur málsmetandi manna voru góðar og Sverrir Kristjánsson birti mjög jákvæðan dóm í Tímariti Máls og menn- ingar og segir þar að þegar Ásta hafi komið fram á sjónarsviðið hafi flestum þótt sem þar kveddi sér hljóðs pennafærasta kona á Íslandi. Hann segir einnig um nokkrar sagnanna að þær séu „meistaralega vel gerðar, laugaðar kaldranalegri gamansemi, er hylur harminn, sem undir býr, hispurslausar, án tæpitungu, svo sem efninu hæfir. Í þessum sögum er engu ofaukið, ekkert vansagt.“ Einar Bragi skáld skrifaði ritdóm um smásögur Ástu í Birting og segir útkomu þess löngu tímabæra svo lesendur fái rétta mynd af Ástu sem rithöfundi. Einar segir að sagan Í hvaða vagni sé ein sú besta sem nútímahöfundur hafi skrifað á íslensku og talar um skýrar borgarmyndir, mettað andrúmsloft, jarðarilm og asfaltlýrík. Búskapur Þorsteins og Ástu í Kópavogi var samfellt fátæktarbasl. Börnunum fjölgaði og 1964 eru þau orðin fimm talsins. Þóranna móðir Ástu og Geir Reginn, elsti sonur hennar, búa ekki langt frá svo fjölskyldutengslin styrkjast eitthvað en Ástu líður ekki vel. Friðrika Benónýsdóttir dregur upp þessa mynd af líðan hennar: „Eina lausnin er víman. Gleðin og hamingjan hopa fyrir kvölinni. Hún verður beisk. Finnst hún vera orðin ósýnileg. Finnst Þorsteinn ekki taka tillit til sín. Hún er þó líka skáld og þarf sína andlegu upp- örvun. Hana fær hún ekki við matargerð og barnastúss. Þegar þau drekka saman vellur beiskjan fram. Andrúmsloftið verður stöðugt þyngra og köfnunartilfinning ásækir þau bæði … Þannig líða árin. Smátt og smátt sígur á ógæfuhlið. Heimilis- lífið fer að einkennast af fylgifiskum áfengisneyslunnar fyrr og síðar, þunglyndi Ástu og skapofsa.“ Síðasti spölurinn Þorsteinn og Ásta skildu á miðjum sjöunda áratugnum. Ásta var fyrst í stað ein með börnin fimm en barnaverndaryfirvöld tóku fljótlega í taumana og fjögur þeirra voru fjarlægð af heimilinu og sett í fóstur um tíma. Ömurlegar frásagnir eru til af heimilishaldi hennar frá árunum milli 1965 og 1968 þegar áfengissýki heldur Ástu í helj- argreipum. Á næstu árum eru Ásta á hrakhólum ýmist með börnin hjá sér eða ekki en heimilið í Kópavogi heyrir sögunni til. Haustið 1968 eru börnin endanlega tekin í fóstur á Ökrum á Mýrum og alast þar upp öll fimm og komu aldrei til móður sinnar aftur. Ásta giftist eftir þetta Baldri Guðmundssyni sem hún kynntist á Landakotsspítala og þau reyna að halda heimili en líf Ástu snýst Ásta Sigurðardóttir Andvakan eftir Ástu Sigurðardóttur Andvakan veldur mér eilífri kvöl aldrei ég veit hvort ég sofna. Að blunda eitt örskot er aðeins dvöl svo úrþrota hugsanir dofna. Þegar að kveldi ruskar reimt og rökkrið er þéttara en óttinn. Þá er í hugskotum heilans geymt sumt helmingi dekkra en nóttin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.