Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 49

Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 49
 sk‡ 49 Irma Þöll Þorsteinsdóttir var á tvennum vígstöðvum þegar rætt var við hana. Hún var á fullu í námi í Kvikmyndaskólanum, auk þess sem hún var að vinna við upptökur á undirbúningskeppni fyrir Eurovision á Íslandi í Loftkastalanum. Það var því í nógu að snúast hjá henni. Um ástæðu þess að hún hóf nám í Kvikmynda- skóla Íslands segir Irma: „Ég hafði verið í tónlistarnámi í mörg ár, lærði á þverflautu en langaði til að prófa eitthvað nýtt. Fyrir valinu varð Kvikmyndaskólinn, aðallega vegna þess að ég hafði alltaf verið dugleg að taka upp á litla vídeóvél, sérstaklega þegar ég bjó í Svíþjóð og sendi upptökurnar heim. Hvað varðar kvikmyndir og sjónvarp þá vissi ég ekki mikið þegar ég settist á skólabekk en heillaðist fljótt af því umhverfi sem kvikmyndin er í og hef haft mjög gaman af náminu. Ég var fljót að finna minn farveg sem er í hljóðvinnslu og hljóðblöndun og öðru sem því fylgir og gerði það að aðalnámsefni mínu, en auk þess er að sjálfsögðu farið í aðra þætti kvikmynda- gerðar í skólanum. Til að auka þekkingu mína á hljóðvinnslunni fór ég á hljóðvinnslunámskeið meðan ég var í fæðingarorlofi.“ Að sögn Irmu er námið í heild fjölbreytt og gefur mörg tækifærri að því loknu til að fá vinnu, meðal annars við sjónvarp: „Ég stefni á að vinna við sjónvarpið og er þegar byrjuð. Var í vetur að vinna við þátt Hermanns Gunnarssonar, Í sjöunda himni, og fékk nýverið frí í skólanum til að vinna við við Eurovision-keppnina hér heima og geri þar allt sem mér er sagt að gera. Ástæðuna fyrir því að ég er komin á kaf í vinnu má rekja til þess að ég fór í starfsnám á Stöð 2 og þegar því lauk var mér boðin vinna við þáttinn hans Hemma. Ég fékk leyfi frá skólanum og hef í vetur verið meira og minna að vinna með náminu og mun á næstunni hefja störf við Meistarann.“ Irma segir samstarf nemenda vera gott í skólanum: „Í bekknum sem ég er í, er samstilltur hópur sem hefur gaman af því sem hann er að gera og nú er komið að lokaverkefnunum. Eitt verkefni gerum við saman og eitt lokaverkefni geri ég sjálf og er búin að ákveða að taka fyrir einhvern flöt á þeim sem eru einna verst staddir í þjóð- félaginu, rónunum sem búa á götunni. Ég hef alltaf fundið til með þeim og vill sýna að þeir eru fólk eins og við, fólk sem hefur lent undir í lífinu, og ég hef hugsað mér að taka fyrir einn slíkan og sýna hann sem menneskju.“ Hvað varðar framtíðina þá telur Irma að atvinnuhorfur fyrir hana séu góðar. „Það þarf samt að hafa fyrir hlutunum. Ég verð eins og aðrir sem ætla sér að vinna í þessum bransa að hafa fyrir því að koma mér á framfæri og vinna mér sess. Ég fann strax þegar ég fór að vinna hjá Hemma Gunn að þetta umhverfi átti vel við mig. Mik- ill fjöldi að vinna saman og mikið um að vera. Slík vinna á vel við mig. Ég var með það í huga að fara í framhaldsnám í hljóðvinnslu, en er samt efins um að það verði strax, sérstaklega ef ég fæ næga vinnu eftir að námi lýkur.“ sky , Kvikmyndaskóli Íslands Böðvar Þór Unnarsson, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands: Úr forleifafræði í kvikmyndagerð Komin út á vinnumarkaðinn með náminu Irma Þöll Þorsteinsdóttir: „Ég hafði verið í tónlist- arnámi í mörg ár, lærði á þverflautu en langaði til að prófa eitthvað nýtt.“ Irma Þöll Þorsteinsdóttir, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.